Svifryksmengun nærri tvöfalt yfir mörkum í borginni í gær Kjartan Kjartansson skrifar 19. nóvember 2020 16:33 Svifriksmælar á Grensásvegi Vísir/Vilhelm
Styrkur svifryks var nærri tvöfalt hærri en heilsuverndarmörk gera ráð fyrir á mælistöð við Grensásveg í gær. Mengun hefur áfram verið viðvarandi í frosti og stillu í borginni í dag þrátt fyrir að borgin hafi látið rykbinda götur. Nagladekk eru sögð vega þungt í svifryksmengun af þessu tagi. Helstu umferðargötur í Reykjavík voru rykbundnar í nótt. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að það virðist hafa virkað því svifryksgildi hafi mælst muni lægri í dag. Gildi fíns svifryks hefur þó enn mælst hátt við Grensás. Borgaryfirvöld mæla með því að fólk skilji bíl eftir heima og fari til og frá vinnu og skóla með öðrum hætti ef það hafi kost á því. Þegar verst lét í gær mældist styrkur svonefnds PM10-svifryks 98 míkrógrömm á rúmmetra við Grensásveg. Heilsuverndarmörk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Á öðrum mælistöðvum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, Vesturbæjarlaug og á gatnamótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar voru gildin rétt undir heilsuverndarmörkum. „Þegar þessar aðstæður skapast í borginni, alger froststilla, leggst mengunin frá morgunumferðinni eins og teppi yfir borgina,“ segir Svava S. Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar. Íhugi að halda börnum inni í leikskólum við umferðaræðar Svifryksmengun hefur áhrif á heilsu fólks, sérstaklega fyrir fólk sem undirliggjandi öndunarfæra- eða hjarta- og æðasjúkdóma. Umhverfisstofnun Evrópu rakti um hundrað ótímabær andlát á Íslandi til fínni svifryksmengunar í skýrslu sinni um loftgæði í álfunni árið 2015. Vísir hefur haft spurnir af því að börnum í að minnsta kosti einum leikskóla nálægt umferðaræð í borginni hafi verið haldið innandyra í gær vegna mengunarinnar. Svava segir að allar tilkynningar um loftgæði séu send dagmæðrum og stjórnendum leik- og grunnskóla en það sé í höndum stjórnendum á hverjum stað að ákveða hvort börnum sé haldið inni. Börn segir hún viðkvæmari fyrir svifryksmengun en fullorðnir. Þau andi örar og þau séu með minni lungu sem eru að þroskast. Stjórnendur leikskóla við umferðarþungar götur ættu því að íhuga að halda börnum inni við aðstæður eins og þær sem voru í gær. Borgin heldur ekki utan um tölfræði hvaða leik- eða grunnskólar halda börnum inni vegna mengunar eða hversu oft, að sögn Svövu. Svifryk er að stórum hluta malbiksagnir. Negld dekk eyða malbikinu sérstaklega upp.Vísir/Vilhelm Færri á nöglum nú en síðustu ár Svava segir að mikið ryk hafi verið í borginni undanfarið. Auk umferðarryksins hafi ryk frá hálendinu borist yfir borgina fyrr í haust og þá hafi töluvert af salti fokið yfir hana með suðvestanroki sem gerði fyrir nokkrum vikum. Vegrykið sé þó stór hluti af menguninni. Í tilkynningu borgarinnar segir að talið sé víst að uppþyrlun ryks vegna bílaumferðar hafi verið ástæða mengunarinnar í gær. Rannsóknir á samsetningu svifryks hafi sýnt að malbiksagnir séu meira en helmingur svifryksagna. Nagladekk vega því þungt þegar kemur að sliti á götum. Færri aka nú um á nagladekkjum en áður samkvæmt talningu borgarinnar. Um 29,5% ökutækja reyndust á negldum dekkjum þegar það var kannað 11. nóvember. Á sama tíma í fyrra var hlutfallið 34,9% og 37,2% árið áður.
Umhverfismál Bílar Reykjavík Samgöngur Heilbrigðismál Nagladekk Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Fleiri fréttir Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Sjá meira