Beint: Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar afhent

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dagur íslenskrar tungu er í dag og er honum fagnað með fjölbreyttum hætti. Meðal annars verða verðlaun Jónasar Hallgrímssonar veitt núna klukkan 16:00, en í þetta skiptið verður athöfnin með óhefðbundnum hætti vegna sóttvarnaráðstafana.

Verður hægt að fylgjast með hátíðardagskrá mennta- og menningarmálaráðuneytisins í beinu streymi, en þar mun Lilja Alfreðsdóttir ráðherra flytja ávarp og tilkynna um verðlauna- og viðurkenningarhafa Jónasar Hallgrímssonar fyrir þetta ár.

Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1996, en ráðgjafanefnd dags íslenskrar tungu gerir tillögu til mennta- og menningarmálaráðherra um verðlaunahafa og rökstyður val sitt. Auk þess er heimilt að veita stofnunum, félagasamtökum og fyrirtækjum sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu.


Verðlaunahafar fyrri ára

1. Vilborg Dagbjartsdóttir skáld og grunnskólakennari, 1996
2. Gísli Jónsson menntaskólakennari, 1997
3. Þórarinn Eldjárn rithöfundur, 1998
4. Matthías Johannessen, skáld og ritstjóri, 1999
5. Magnús Þór Jónsson, Megas, 2000
6. Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld og þýðandi, 2001
7. Jón Böðvarsson, 2002
8. Jón S. Guðmundsson, 2003
9. Silja Aðalsteinsdóttir, 2004
10. Guðrún Helgadóttir, 2005
11. Njörður P. Njarðvík, 2006
12. Sigurbjörn Einarsson, 2007
13. Herdís Egilsdóttir kennari, 2008
14. Þorsteinn frá Hamri, rithöfundur og skáld, 2009
15. Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna í tungumálum, fyrrverandi forseti Íslands og leikhússtjóri, 2010
16. Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur, 2011
17. Hannes Pétursson rithöfundur, 2012
18. Jórunn Sigurðardóttir dagskrárgerðarmaður, 2013
19. Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur 2014
20. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur 2015
21. Sigurður Pálsson skáld 2016
22. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, 2017
23. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, 2018
24. Jón G. Friðjónsson prófessor, 2019

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert