Fótbolti

Dagný ekki með í landsleikjunum og tveir nýliðar kallaðir inn í íslenska hópinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagný missti af síðasta leik Íslands í undankeppni EM, gegn Svíþjóð, og verður einnig fjarri góðu gamni gegn Slóvakíu og Ungverjalandi.
Dagný missti af síðasta leik Íslands í undankeppni EM, gegn Svíþjóð, og verður einnig fjarri góðu gamni gegn Slóvakíu og Ungverjalandi. vísir/vilhelm

Dagný Brynjarsdóttir getur ekki tekið þátt í síðustu tveimur leikjum íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í undankeppni EM vegna meiðsla.

Þá hefur Sandra María Jessen dregið sig út úr íslenska hópnum sem mætir Slóvakíu og Ungverjalandi ytra um næstu mánaðarmót. Sandra María er í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp í liði hennar, Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

Í stað þeirra Dagnýjar og Söndru Maríu hefur Jón Þór Hauksson kallað inn tvo nýliða í landsliðið; Kristínu Dís Árnadóttur, varnarmann Íslandsmeistara Breiðabliks, og Bryndísi Örnu Níelsdóttur, framherja Fylkis.

Kristín Dís hefur verið í lykilhlutverki í vörn Breiðabliks undanfarin ár.vísir/bára

Kristín Dís, sem er 21 árs, lék alla fimmtán leiki Breiðabliks í Pepsi Max-deild kvenna í sumar. Liðið fékk aðeins þrjú mörk á sig og hélt marki sínu þrettán sinnum hreinu. Kristín Dís hefur leikið 29 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað þrjú mörk.

Bryndís Arna er einn af okkar efnilegustu framherjum.vísir/bára

Bryndís Arna, sem er sautján ára, skoraði tíu mörk í fimmtán deildarleikjum í sumar og var langmarkahæsti leikmaður Fylkis. Hún hefur skorað sex mörk í fjórtán leikjum fyrir yngri landslið Íslands.

Dagný missti einnig af síðasta leik Íslands í undankeppninni, 2-0 tapi fyrir Svíþjóð. Íslendingar eru í 2. sæti F-riðils undankeppninnar og eiga góðan möguleika á að komast á EM. Til þess þarf íslenska liðið þó að vinna Slóvakíu 26. nóvember og Ungverjaland 1. desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×