Klopp ánægður með nýja parið en vill að það tali meira Sindri Sverrisson skrifar 22. október 2020 08:00 Fabinho bjargaði Liverpool meistaralega með því að hreinsa á marklínu eftir að boltinn fór yfir Adrian. Getty/Andrew Powell
Jürgen Klopp var ánægður með frammistöðu Fabinho sem miðvarðar í 1-0 sigrinum gegn Ajax í gær en segir þá Joe Gomez geta gert betur. Liverpool var án Virgil van Dijk og Joël Matip vegna meiðsla, í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. Fabinho fór því af miðjunni í stöðu miðvarðar, eins og stundum áður, og gæti þurft að leysa það hlutverk mun oftar í vetur nú þegar ljóst er að Van Dijk verður frá keppni í marga mánuði vegna hnémeiðsla. Þeir Gomez mynduðu nýtt miðvarðapar Liverpool. Klippa: Ajax - Liverpool 0-1 Vegna meiðsla Van Dijk hefur talsverð umræða verið um miðvarðamál Liverpool og Klopp er meðvitaður um það: „Var pressa varðandi þessa stöðu í kvöld? Já,“ sagði Klopp á blaðamannafundi eftir leik í gær. „Það er ljóst að miðverðirnir tveir voru að spila sinn fyrsta leik saman, held ég. Fabinho getur spilað í þessari stöðu og hefur raunar gaman af því. Ef ég bæði hann um að spila sem bakvörður myndi hann ekki njóta þess eins mikið. Miðað við okkar stöðu þá verða þessir strákar að halda sér í standi en ég er mjög ánægður með kvöldið. Þetta gaf honum klárlega sjálfstraust,“ sagði Klopp um Fabinho. Joe og Fabinho þurfa að venjast hvor öðrum Brasilíumaðurinn kom Liverpool til bjargar seint í leiknum með bakfallsspyrnu á marklínu þegar Dusan Tadic var nálægt því að jafna metin fyrir Ajax. „Þetta var gott en Fabinho getur spilað betur. Joe og Fabinho þurfa að venjast hvor öðrum, og venjast því hvaða kröfur eru gerðar um að menn í þessari stöðu tali við aðra og hjálpi miðjunni. Þetta var góð frammistaða en það er mikið svigrúm til að bæta sig, og það er gott. Þetta var svo sannarlega gott kvöld.“ Sigurmark Liverpool var sjálfsmark heimamanna eftir spyrnu Sadio Mané.Getty/MAURICE VAN STEEN Þríeykið Mohamed Salah, Roberto Firmino og Sadio Mané fór af velli eftir klukkutíma leik en Klopp sagði það ekki hafa verið vegna leiksins við Sheffield United á laugardag, eða vegna meiðsla. Mané sást með kælipoka á hnénu eftir að hafa farið af velli: „Eins og sást þá var þetta hraður leikur og ef að boltinn vannst fengu menn stórt tækifæri á að sækja hratt. Þetta var krefjandi fyrir fremstu þrjá mennina svo ég var ánægður með að geta gert þessar breytingar og eiga fimm skiptingar. Sadio hefur verið með „dead leg“ í nokkra daga. Hann finnur enn til en þetta er ekki vandamál og hann notar kælingu þegar hann er ekki að spila,“ sagði Klopp.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu sigurmark Liverpool, aukaspyrnu Gündogans og markasúpuna í Bæjaralandi Liverpool, Manchester City og Bayern Munchen byrja öll Meistaradeildina vel í ár en öll unnu þau leiki sína í 1. umferð riðlakeppninnar í gærkvöldi. 22. október 2020 07:01 Liverpool vann í Hollandi á sjálfsmarki Liverpool byrjar Meistaradeildina vel þetta tímabilið en þeir unnu 1-0 sigur á Ajax á útivelli í kvöld. 21. október 2020 20:55 Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Fleiri fréttir Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Sjá meira
Sjáðu sigurmark Liverpool, aukaspyrnu Gündogans og markasúpuna í Bæjaralandi Liverpool, Manchester City og Bayern Munchen byrja öll Meistaradeildina vel í ár en öll unnu þau leiki sína í 1. umferð riðlakeppninnar í gærkvöldi. 22. október 2020 07:01
Liverpool vann í Hollandi á sjálfsmarki Liverpool byrjar Meistaradeildina vel þetta tímabilið en þeir unnu 1-0 sigur á Ajax á útivelli í kvöld. 21. október 2020 20:55