Í sjokki yfir sóttvörnum á EM: „Hvernig getum við spilað?“ Sindri Sverrisson skrifar 12. janúar 2022 10:30 Nikola Karabatic er mættur með Frökkum á enn eitt stórmótið.Hann á þrenn gullverðlaun af Evrópumótum, fern af heimsmeistaramótum og þrenn af Ólympiuleikum. Getty/Hasan Bratic Ein skærasta stjarna EM í handbolta og landsliðsþjálfari Serbíu eiga vart orð yfir skorti á sóttvörnum á mótinu.
Þátttökuþjóðirnar eru nú nýmættar til Ungverjalands og Slóvakíu til að taka þátt á EM sem hefst á morgun. Íslenska liðið ferðaðist til að mynda til Búdapest í gær. Liðin hafa síðustu daga og vikur lagt mikið á sig til að forðast kórónuveirusmit en reglur EHF kveða á um að leikmenn þurfi að vera í einangrun í fimm daga eftir að smit greinist, og skila tveimur neikvæðum prófum, til að mega spila á EM. Þannig hafa Frakkar til að mynda verið í sóttvarnabúbblu í aðdraganda EM, rétt eins og Íslendingar. Nikola Karabatic segir eitthvað allt annað í gangi á hóteli Frakka í Szeged í Ungverjalandi: Umgangast hótelgesti sem huga ekki að sóttvörnum „Við vorum furðu lostnir, eða bara í sjokki, yfir þeim aðstæðum sem boðið er upp á á mótinu,“ er haft eftir Karabatic í frönskum miðlum. „Við fylgdum ströngum reglum til að forðast það að fá Covid og komum svo á hótel þar sem eru aðrir gestir sem ekki nota grímur. Við borðum á sama svæði og aðrir hótelgestir,“ sagði Karabatic. Vincent Gérard, markvörður Frakka, tók í sama streng. „Þegar maður mætir á hótelið og sér fólk labba um í sundfötunum og fara í hótellaugina án þess að vera með grímu eða neitt, þá er það sjokk. Sóttvarnareglurnar hérna eru, svo ekki sé meira sagt, öðruvísi,“ sagði Gerard. Philippe Bana, formaður handknattleikssambands Frakklands, segir að búið sé að leita til EHF vegna málsins og að úr því eigi að bæta í dag. Frakkar hefja keppni annað kvöld þegar þeir mæta Króötum í stórleik. Chaotic organisation in @EHFEURO!Normal clients without in the same corridor with the teams, no tests for all teams, delay on the tests (still waiting to be tested when it was planned at 8:45h) result=some players already infected. How can we play??— toni gerona (@geronatoni) January 12, 2022 Serbar hafa glímt við fjölda kórónuveirusmita í aðdraganda EM. Toni Gerona, hinn spænski þjálfari Serbíu, harmar þær aðstæður sem boðið er upp á á EM. Segir hann algjöra ringulreið ríkja, liðin þurfi að umgangast aðra hótelgesti sem ekki séu með grímur, ekki séu tekin próf, og að þegar séu leikmenn farnir að smitast. „Hvernig getum við spilað??“ spyr Gerona.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Íslenski boltinn „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Enski boltinn Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Fótbolti Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Enski boltinn Kolli í titilbardaga sem gæti valdið vatnaskilum Sport „Höfum engu að tapa núna“ Fótbolti „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ Fótbolti Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Fleiri fréttir Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Sjá meira