Samdi aftur í Svíþjóð

Böðvar Böðvarsson skrifaði undir tveggja ára samning við Trelleborg.
Böðvar Böðvarsson skrifaði undir tveggja ára samning við Trelleborg. Ljósmynd/Trelleborg

Knattspyrnumaðurinn Böðvar Böðvarsson hefur skrifað undir samning við sænska B-deildarfélagið Trelleborg. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Böðvar, sem er 26 ára gamall, skrifaði undir tveggja ára samning við félagið en hann kemur til Trelleborg frá Helsingborg þar sem hann lék á síðustu leiktíð. 

Vinstri bakvörðurinn var í stóru hlutverki hjá Helsingborg á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í sænsku úrvalsdeildinni en hann fékk ekki áframhaldandi samning hjá Helsingborg.

Böðvar er uppalinn hjá FH í Hafnarfirði en hann hefur einnig leikið með Midtjylland í Danmörku og Jagiellonia í Póllandi á atvinnumannferli sínum.

Alls á hann að baki 73 leiki í efstu deild hér á landi þar sem hann hefur skorað eitt mark og þá á hann að baki 5 A-landsleiki fyrir Ísland.

Trelleborg hafnaði í sjöunda sæti sænsku B-deildarinnar á síðustu leiktíð en keppni í deildinni hefst að nýju 2. apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert