Vilja að vinnu sé flýtt eftir banaslys af völdum réttindalauss ökumanns undir áhrifum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. september 2021 15:56 Frá slysstað. Mynd/RNSA Rekja má banaslys sem varð á Reykjanesbraut í mars á síðasta ári til þess að réttindalaus ökumaður var óhæfur til aksturs sökum fíkniefna- og lyfjaneyslu. Rannsóknanefnd samgöngslysa hvetur samgönguráðuneytið til að flýta vinnu nefndar sem miðar að því að taka betur á við þann hóp ökumanna sem ítrekað ekur undir áhrifum áfengis, lyfja eða fíkniefna.
Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir umferðaróhapp á Reykjanesbraut norðan við Smáralind í Kópavogi þann 10. mars 2020. Réttindalaus og undir áhrifum Slysið varð með þeim hætti að bílstjóri á Opel-bíl skipti um akrein til hægri og ók í veg fyrir Volkswagen-bíl. Ökumaður þess bíls ók bílnum á talsvert meiri hraða en ökumaður bílsins sem ætlaði að skipa um akrein. Reyndi ökumaður Volkswagens bílsins að sveigja frá til hægri en missti þá stjórn á bílnum. Endaði það með því að bíllinn hafnaði með hægri hlið á ljósastaur á mikilli ferð. Farþegi í bílnum, þrítugur karlmaður, lét lífið af völdum áverka sem hlutust í slysinu. Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa vegna slyssins segir að ökumaður Volkswagens-bílsins sem endaði á ljósastaurnum hafi ekki verið með ökuréttindi þegar slysið varð. Þá hafi hann ítrekað gerst brotlegur við umferðarlög, meðal annars ítrekað ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án ökuréttinda. Áfengis- og lyfjarannsókn á ökumanninum leiddi einnig í ljós að hann var undir áhrifum fíkniefna og sljóvgandi lyfja þegar slysið varð. Eru orsök slyssins rakin til þess að ökumaður Volkswagens-bílsins hafi verið réttindalaus, óhæfur til aksturs sökum fíkniefna- og lyfjaneyslu, auk þess sem að hann ók of hratt miðað við aðra umferð. Þá er orsökin einnig rakin til þess að ökumaður Opel-bílsins skipti um akrein. Vilja að ráðuneytið hraði vinnu Í skýrslu nefndarinnar er vísað í að af sjö banaslysum sem urðu árið 2020 hafi ökumenn í þremur þeirra verið undir áhrifum sljóvgandi lyfja eða fíkniefna. „Eins og alþekkt er hafa vímuefni áhrif á dómgreind ökumanna og skynjun þeirra á umhverfið. Þættir eins og viðbragð, hreyfistjórnun og rökvísi skerðast og líkur á slysi aukast,“ segir í skýrslunni. Því sé nauðsynlegt að koma þeim skilaboðum á framfæri við ökumenn að þeir aki ekki undir neinum kringumstæðum eftir neyslu slíkra efna. Er einnig vísað í að nefnd hafi verið skipuð á vegum samgönguráðuneytis eftir að rannsóknarnefndin óskaði eftir nýjum úrræðum gegn ölvunar- og lyfjaakstri ökumanna svo takast mæti betur á við þann hóp ökumanna sem ítrekað aki undir áhrifum áfengis, lyfja eða fíkniefna. Niðurstöður nefndar sem skipuð var í kjölfar tillögunnar hafa enn ekki verið birtar. Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur Samgönguráðuneytið til að flýta þessari vinnu eins og kostur er.
Samgönguslys Samgöngur Stjórnsýsla Kópavogur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira