Kaupa allt hlutafé í Nóa Síríus og Finnur hættir sem forstjóri Atli Ísleifsson skrifar 5. maí 2021 11:25 Meðal vara Nóa Síríus má nefna súkkulaði af ýmsu tagi undir heitinu Síríus, Nóa Konfekt, Nóa Kropp, Nóa Páskaegg og Konsum. Vísir/Vilhelm Orkla ASA hefur komist að samkomulagi um kaup á öllu hlutafé í sælgætisframleiðandanum Nóa Síríus hf.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Deloitte á Íslandi sem hafði umsjón með söluferlinu. Þar segir að sögu Nóa Síríus megi rekja allt aftur til ársins 1920, en þar starfa í dag um 120 manns. Orkla er leiðandi fyrirtæki á neytendavörumarkaði á Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og völdum mörkuðum í Mið-Evrópu og á Indlandi. Orkla er skráð á hlutabréfamarkað í Noregi og eru höfuðstöðvar fyrirtækisins í Osló. Velta félagsins árið 2020 var um 47 milljarður norskra króna og eru starfsmenn félagsins yfir 21 þúsund talsins. Orkla hefur verið 20% hluthafi í Nóa Síríus undanfarin tvö ár en fyrirliggjandi samkomulag felst í kaupum á hlutum annarra hluthafa. Aðilar hafa komið sér saman um að gefa ekki upp kaupverð viðskiptanna. Fjármálaráðgjöf Deloitte hafði umsjón með ferlinu og var ráðgjafi seljenda. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Í tengslum við þessi viðskipti, hefur Finnur Geirsson forstjóri Nóa Síríus, óskað eftir að láta af störfum eftir 31 ár sem forstjóri félagsins. Finnur mun þó halda áfram sem forstjóri félagsins til 1. ágúst næstkomandi, þegar Lasse Ruud-Hansen mun taka við stöðunni en hann hefur víðtæka reynslu innan FMCG iðnaðarins og var síðast SVP Business Development hjá Orkla Consumer & Financial Investments,“ segir í tilkynningunni. Velta Nóa Síríus árið 2020 var um 3,6 milljarðar. Vaxtarmarkaður Haft er eftir Jaan Ivar Semlitsh, forstjóra Orkla að Nói Síríus hafi sérstöðu á Íslandi sem falli vel að eignasafni Orkla af leiðandi vörumerkjum. „Við sjáum möguleika á að skapa verðmæti með því að halda áfram að byggja á sterkri stöðu Nóa Síríus á Íslandi, en jafnframt auka vöruúrvalið. Súkkulaði, snakk og sælgæti eru kjarnaflokkar fyrir Orkla. Ísland er vaxtarmarkaður og við ætlum að vera hluti af þeim vexti.” Einnig er haft eftir Finni Geirssyni , fráfarandi forstjóra Nóa Síríus hf., að á þessum tímamótum sé hann sérstaklega stoltur af því að hafa, ásamt framúrskarandi samstarfsfólki, byggt upp fyrirtæki og vörumerki Nóa Síríusar. „Þegar eitt stærsta fyrirtæki Norðurlandanna á þessu sviði sýnir fyrirtækinu jafn mikinn áhuga og raun ber vitni, fyrst sem minnihluthafi og í kjölfarið með núverandi samkomulagi, er það skýr vitnisburður um einstakan árangur. Við erum jafnframt ánægð með kaupandann, sem er öflugur aðili með víðtæka þekkingu á starfsemi af þessu tagi, og teljum við að Nói Síríus verði í góðum höndum með Orkla. Fyrir þeim vakir að hlúa að okkar ágætu vörumerkjum sem hafa unnið sér hylli á löngum ferli fyrirtækisins.“
Kauphöllin Sælgæti Kaup og sala fyrirtækja Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Sjá meira