Fuglaflensa ekki talin ástæða fjöldadauðans Vésteinn Örn Pétursson skrifar 1. júní 2023 16:32 Ekki er talið að skæð fuglaflensa sé orsök þess að ritur og lundar hafi drepist unnvörpum að undanförnu. Vísir/Steingrímur Dúi Fuglaflensa er ekki talin ástæða fjöldadauða fugla sem hefur valdið vísindamönnum áhyggjum upp á síðkastið. Hundruð fugla hafa fundist dauð víða um land.
Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að talið sé ólíklegt að skæð fuglaflensa sé til staðar í villtum fuglum hér á landi. Öll sýni úr dauðum lundum og ritum sem skoðuð hafi verið á tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum hafi verið neikvæð. Þá segir að aðeins eitt tilfelli skæðrar fuglaflensu hafi greinst hér á landi það sem af er ári. Það var í stokkönd sem fannst dauð í mars. „Mikið var um skæða fuglaflensu í vetur í Evrópu, m.a. á vetrarstöðvum íslenskra farfugla, en tilfellum hefur fækkað mjög að undanförnu. Starfshópur um fuglaflensu, sem í eru sérfræðingar á Matvælastofnun, Háskóla Íslands og Tilraunastöð HÍ að Keldum, metur reglulega líkur á að fuglaflensa berist til landsins með farfuglum og hættu á að hún berist í alifugla. Nú þegar allar tegundir farfugla eru komnar til landsins og fuglaflensa hefur ekki greinst í neinum af þeim sýnum sem rannsökuð hafa verið, eru að mati starfshópsins litlar líkur á að fuglaflensa sé til staðar í villtum fuglum hér á landi,“ segir í tilkynningunni. Óljóst hvað veldur Matvælastofnun hefur borist fjöldi tilkynninga um dauða í lundum á suðvesturhluta landsins að undanförnu, mest við Faxaflóa. Fréttastofa hefur fjallað um málið og ræddi meðal annars við fuglafræðing sem sagði ómögulegt að segja til um hvað byggi að baki fjöldadauða fuglanna. „Við sjáum svona af og til. Fugladauða þar sem margir fuglar drepast en það er virkilega óvanalegt í þessu magni og ég man satt að segja ekki eftir svona miklum dauða af fleiri en einni tegund,“ sagði Sölvi Rúnar Vignisson fuglafræðingur þegar fréttastofa ræddi við hann um liðna helgi. Hann sagði þá að fæðuskortur gæti verið ástæða þess að fuglarnir dræpust í jafn miklum mæli og raun ber vitni, en taldi ólíklegt að ölduhæð eða ofsaveður ætti þátt í dauða þeirra. „Þótt taldar séu litlar líkur á að skæðar fuglaflensuveirur séu í villtum fuglum hér á landi um þessar mundir, hvetur Matvælastofnun fuglaeigendur til að gæta sóttvarna til að verja fugla sína eins og kostur er gegn smiti frá villtum fuglum. Stofnunin biður einnig almenning um að halda áfram að tilkynna um fund á veikum og dauðum villtum fuglum. Tilkynningarnar eru mjög mikilvægur liður í vöktun á tilvist og útbreiðslu smits,“ segir í tilkynningu MAST.
Fuglar Dýr Dýraheilbrigði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira