Stóryrtur Breki lagði smálánafyrirtækin í annarri lotu Árni Sæberg skrifar 3. febrúar 2023 17:39 Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakanna. Stöð 2/Arnar Landsréttur hefur sýknað Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna, vegna ummæla sem hann lét falla um starfsemi smálánafyrirtækisins Ecommerce. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði í september 2021 dæmt fjögur ummæli Breka, um að smálánin og innheimta þeirra væri ólögleg, dauð og ómerk.
Ummælin, sem smálánafyrirtækið stefndi Breka og Neytendasamtökunum fyrir, voru sett fram í tölvupósti Breka til tveggja fyrirtækja sem veittu Ecommerce greiðslumiðlunarþjónustu og fólu í sér fullyrðingar um að þjónusta fyrirtækisins hefði verið úrskurðuð ólögmæt hér á landi. Í dómi sínum frá 27. september árið 2021 dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur eftirfarandi ummæli Breka dauð og ómerk, með vísan til þess að þau væru röng og að Breki hafi ekki sett þau fram í góðri trú um sannleiksgildi þeirra: „the loans have been deemed illegal in Iceland.“ „whose only operation is illegal predatory lending.“ „These loans have been ruled illegal in Iceland by both courts and the Consumer surveillance agency.“ „illegal transfers.“ Í dómi Landsréttar segir meðal annars að ummælin rúmist innan þess frelsis sem Breki nýtur samkvæmt tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar og tíundu grein mannréttindasáttmála Evrópu. Það frelsi verði að telja nokkuð rúmt í tilviki Breka og Neytendasamtakanna í ljósi hlutverks þeirra og að það vegi þyngra en réttur Ecommerce til æruverndar. Þá sé Breki ólöglærður og þrátt fyrir að ummæli hans hafi ekki verið lögfræðilega nákvæm hafi þau ekki verið úr lausu lofti gripin og lagt hafi verið til grundvallar að Breki hefði, í ljósi þeirra upplýsinga sem fyrir lágu, viðhaft þau í góðri trú um réttmæti þeirra og verið heimilt að halda þeim fram Ecommerce var gert að greiða eina milljón króna í málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti. Dóm Landsréttar má lesa í heild sinni hér.
Neytendur Dómsmál Smálán Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Eldvörp líkleg næst Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Erlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Fleiri fréttir Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Sjá meira