Viðskipti innlent

Sitja uppi með tí­faldan máls­kostnað eftir að hafa neitað að greiða 80 þúsund króna skuld

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Málið má rekja til deilna um skuld vegna tjónaviðgerðar á bílaleigubíl.
Málið má rekja til deilna um skuld vegna tjónaviðgerðar á bílaleigubíl. Vísir/Vilhelm

Eignarhaldsfélagið Summus hefur verið dæmt til að greiða tryggingarfélaginu Verði 80 þúsund króna skuld sem félögin tókust á um fyrir dómi. Summus þarf einnig að greiða Verði 800 þúsund krónur í málskostnað, tífalda þá upphæð sem deilt var um.

Málið má rekja til þess að Vörður greiddi fyrir viðgerð á bíl í eigu Summus, sem rekur bílaleigu, varð fyrir tjóni. Kostnaður vegna viðgerðarinnar nam 414 þúsund krónum, þar af 80.184 krónur í virðisaukaskatt.

Vörður krafði Summus um endurgreiðslu á virðisaukaskattinum á þeim grundvelli að það væri á virðisaukaskattskrá. Félagið gæti því talið virðisaukaskattinn af viðgerðinni til innskatts hjá sér eftir almennum reglum um frádrátt virðisaukaskatts. Miðað við þessa frádráttarheimild ætti að miða bótafjárhæð við kostnað við viðgerðina án virðisaukaskatts.

Þessu vildi Summus ekki una og kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í gær að innheimtutilraunir Varðar hafi ekki borið árangur.

Sögðust aldrei hafa haft fjárhæðina undir höndum

Málsvörn Summus byggðist einkum á því að félaginu væri ekki skylt að innskatta virðisaukaskatt sem falli á tryggingarfélagið vegna tjónsviðgerða á bíla sem væru í eigu félagsins, þó svo að það kynni að vera heimilt. Félagið hafi aldrei innskattað höfuðstól kröfunnar, umræddar 80 þúsund krónur, og félagið hafi því aldrei haft undir höndum þá fjárhæð sem tryggingafélagið krafðist.

Tryggingarfélagið Vörður hafði betur.Vísir/Vilhelm

Í niðurstöðu héraðsdóms segir að tjónþola beri skylda til þess að takmarka tjón sitt. Í því felist að honum beri að gæta þeirra úrræða sem hann eigi rétt á samkvæmt lögum til þess að takmarka tjón sitt.

Segir í niðurstöðunni að óumdeilt sé að Summus sé heimilt að telja virðisaukaskatt af viðgerðarkostnaði til innskatts. Taldi dómurinn það ekki hafa þýðingu fyrir úrlausn málsins að félaginu væri ekki skylt að nýta sér þessa heimild. Féllst dómurinn því á það að miða ætti bótafjárhæð við kostnað við viðgerðina án virðisaukaskatts.

Summus þarf því að greiða Verði umræddar 80 þúsund krónur auk dráttarvaxta frá 17. ágúst á síðasta ári til greiðsludags. Þá þarf félagið einnig að greiða Verði 800 þúsund krónur í málskostnað vegna málsins, eða um tífalda þá upphæð sem deilt var um.

Í fréttinni stóð í fyrstu að um tryggingafélagið Sjóvá hafi verið um að ræða. Það er rangt. Tryggingafélagið sem um ræðir er Vörður. Þetta hefur nú verið leiðrétt. Beðist er velvirðingar á mistökunum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×