Misstu af átta tækifærum til að sjá mann synda til Suður-Kóreu Samúel Karl Ólason skrifar 23. febrúar 2021 15:06 Landgönguliðar vakta ströndina við landamæri Suður- og Norður-Kóreu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. EPA/Yonhap Hermenn Suður-Kóreu tóku ekki eftir manni frá Norður-Kóreu sem birtist átta sinnum á upptökum og setti viðvörunarkerfi í gang meðan hann synti til suðurs með ströndum Kóreuskaga.
Maðurinn, sem er sjómaður á þrítugsaldri, var handtekinn sex klukkustundum síðar, þann 16. febrúar, löngu eftir að hann komst yfir landamærin og sagðist hann vilja hæli í Suður-Kóreu. Hann sagðist hafa forðast hermenn af ótta við að verða skotinn eða sendur aftur til Norður-Kóreu. Maðurinn synti með austurströnd ríkjanna og komst hann yfir gaddavíra á ströndinni með því að skríða í gegnum frárennsli. Hann synti svo rúma þrjá kílómetra til viðbótar og fór þar í land, samkvæmt frétt Yonhap fréttaveitunnar, þar sem farið er yfir ferðalag mannsins. Þá gekk hann rúma fimm kílómetra eftir vegi þar sem hermenn sáu hann á öryggismyndavélum. Þrátt fyrir það var hann ekki gómaður fyrr en þremur klukkustundum síðar. Um þúsund manns flýja Norður-Kóreu á ári hverju en flestir fara til Kína. Það þykir mun auðveldara enda eru landamæri Norður- og Suður-Kóreu einhver víggirtustu landamæri heims. Á meðan ferðalag mannsins stóð yfir misstu hermenn ítrekað af honum á öryggismyndavélum og urðu ekki varir við tvær viðvörunarbjöllur. Einn hermaður sem átti að vakta kerfið var að gera breytingar á tölvukerfi og taldi hann viðvörunarbjöllurnar hafa hringt vegna þess. Annar var í símanum. Þá leiddi rannsókn sem hafin var eftir að annar flóttamaður komst í gegnum frárennsli í ljós að herinn vissi ekki af frárennslinu sem maðurinn skreið í gegnum. Í rauninni komust forsvarsmenn hersins að því að alls þrjú slík rör væru á landamærunum, sem væru ekki skráð hjá hernum. Herforingjaráð Suður-Kóreu segir að farið verði yfir það hvernig þetta gat gerst og vöktunarkerfi ríkisins á landamærunum verði bætt, samkvæmt frétt BBC.
Suður-Kórea Norður-Kórea Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Fleiri fréttir Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Þurfa ekki að rannsaka eiturtilræði við rússneskan andófsmann Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Yfirvöld ábyrg fyrir dauða þúsunda einstaklinga sökum mengaðs blóðs Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Aldraður eðlisfræðingur sendur í gúlagið fyrir landráð „Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Sjá meira