Ekki er heiglum hent að slá bæði Jon Rahm og Justin Thomas við á lokasprettinum á PGA-móti ef þessir kappar eru í baráttunni um sigurinn.
Það tókst hins vegar Bandaríkjamanninum Patrick Cantlay að gera í gærkvöld þegar flestir bjuggust við því að Rahm eða Thomas færi með sigur af hólmi í Kaliforníu.
Cantlay lék lokahringinn á 65 höggum og lauk leik á 23 höggum undir pari samtals en þeir Rahm og Thomas voru á 22 undir pari. Var þetta þriðji sigur Cantlay á PGA-mótaröðinni á ferlinum.
Tiger Woods lauk leik á höggi undir pari og eins og staðan er núna er hann ekki líklegur til að gera rósir á Masters í nóvember. Mótinu sem hann sigraði eftirminnilega á í fyrra. En hann hefur þó tíma til að skerpa betur á leikæfingunni áður en farið verður til Augusta.