Eitt boð ber tölurnar uppi Samúel Karl Ólason og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 28. nóvember 2020 11:45 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að stóran hluta dreifingar Covid-19 sem greinst hefur að undanförnu megi rekja til eins fjölskylduboðs. Hann segir tölurnar í dag svipaðar og í gær en þó hafi fleiri verið í sóttkví við greiningu. Það gæti verið til marks um línulegan vöxt.
Í samtali við fréttastofu segir Þórólfur að eitt boð beri tölurnar uppi að miklu leyti. Þar hafi fólk hist í fjölskylduhitting. Einnig komi aðrar hópamyndanir inn í og ekkert sé endilega um teiti eða slíkt að ræða. „Það þarf ekkert mikið meira til. Þess vegna erum við að biðla til fólks um að fara mjög varlega í hópamyndanir og láta þær helst vera, þannig að við getum náð þessu almennilega niður,“ segir Þórólfur. Sjá einnig: 21 greindist með Covid-19 innanlands í gær Hann segir ekki sé endanlega búið að ákveða næstu tillögur að sóttvarnaaðgerðum en núverandi aðgerðir gilda til 2. desember. Hann eigi í samvinnu við ráðherra og þær séu í skoðun. Hann hafi ekki gert upp hug sinn. „Ég held að það sé ljóst að það þarf ekki mikið út af að bregða til að við getum fengið mjög mikinn vöxt í þetta aftur. Þannig að ég held að það þurfi að fara mjög varlega í allar tilslakanir og kannski enn varlegra en maður áætlaði á meðan þetta leit vel út.“ Ef Íslendingar vilji ekki fara út í jólin með mikinn faraldur í gangi þurfi að fara mjög varlega í tilslakanir. Þórólfur segist hafa miklar áhyggjur af hópamyndun í verslun um helgina og biður fólk um að fara mjög varlega og forðast mannmergð. Þá biður hann fólk um að halda áfram að standa sig vel. „Það er búið að ganga mjög vel að ná þessari uppsveiflu sem við sáum fyrir mánuði síðan, niður og það er mjög mikilvægt að fólk haldi áfram. Það er fyrst og fremst hópamyndanirnar sem eru að valda þessu bakslagi núna,“ segir Þórólfur. „Fólk er ekki að passa sig. Fólk er að hittast, innan fjölskyldna, utan fjölskyldna, í litlum sakleysislegum hópum jafnvel. En afleiðingarnar geta orðið þessar.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Erlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Innlent Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Innlent Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Erlent Kanna hvar Perry fékk ketamínið Erlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent Fleiri fréttir Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Sjá meira