Íslenski boltinn

Óskar Hrafn og Hall­dór fram­lengja í Kópa­voginum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Halldór Árnason og Óskar Hrafn Þorvaldsson verða áfram í Kópavogi.
Halldór Árnason og Óskar Hrafn Þorvaldsson verða áfram í Kópavogi. VÍSIR/VILHELM

Óskar Hrafn Þorvaldsson og Halldór Árnason hafa framlengt samninga sína við Breiðablik. Eru þeir nú samningsbundnir næstu fjögur árin. Þetta kemur fram á vef Breiðabliks.

Óskar Hrafn og Halldór tóku við Breiðabliki fyrir síðasta tímabil. Þegar Íslandsmótið var blásið af vegna kórónuveirufaraldursins var liðið í 4. sæti. 

Nú þegar aðeins ein umferð er eftir af Íslandsmótinu á Breiðablik enn möguleika á að verða Íslandsmeistari þó svo að liðið þurfi að treysta á að Leiknir Reykjavík steli allavega stigi gegn Víkingum í Fossvogi.

„Óskar Hrafn Þorvaldsson, aðalþjálfarari meistaraflokks karla, hefur í dag skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við félagið. Óskar hefur stýrt liðinu frá árinu 2019 en mikil ánægja hefur ríkt með störf hans á þeim tveimur árum sem hann hefur verið við stjórnvölinn,“ segir á vef Blika.

„Halldór Árnason, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við félagið. Mikil ánægja hefur ríkt með störf Halldórs hjá félaginu en auk þess að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks hefur hann sinnt þjálfun yngri iðkenda,“ segir einnig í frétt Blika.

Breiðablik mætir HK í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport 2 klukkan 14.00. Heimamenn geta orðið Íslandsmeistari og HK fallið svo það má segja að það sé allt undir í Kópavogi á morgun.

Stöð 2 Sport verður með veglega dagskrá á morgun. Upphitun Pepsi Max stúkunnar hefst klukkan 13:00 og hægt verður að fylgjast með öllum leikjunum samtímis í þættinum. Þá verða allir leikirnir í lokaumferðinni sýndir beint og klukkan 20:00 er svo komið að uppgjörsþætti. Nánari upplýsingar um dagskrá morgundagsins má sjá með því að smella hér.


Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.


Tengdar fréttir

Víkingar hafa aldrei unnið Leiknismenn í efstu deild

Víkingur verður Íslandsmeistari í knattspyrnu á morgun ef liðið vinnur lokaleik sinn á móti Leikni. Það hafa Víkingar þó aldrei afrekað áður í sögunni í deild þeirra bestu.

Bikarinn verður miðja vegu á milli Víkinnar og Smárans

Íslandsmeistarabikarinn fer annað hvort á loft á Víkingsvelli eða Kópavogsvelli. Á meðan leikjunum í lokaumferðinni í Pepsi Max-deild karla verður bikarinn í vörslu starfsmanns KSÍ á miðlægum stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×