Daft Punk sendir frá sér lokatóna

Daft Punk hafa sent frá sér lokatóna sína samkvæmt myndbandinu.
Daft Punk hafa sent frá sér lokatóna sína samkvæmt myndbandinu. Skjáskot

Franska raftónlistarsveitin Daft Punk hefur sent frá sér nýtt myndband undir heitinu „Epilogue“ eða lokaorð upp á íslensku. Í myndbandinu má sjá þegar dúóið Guy-Manuel de Homem-Christo og Thomas Bangalter, í formi róbótanna sem einkennt hafa vörumerki hljómsveitarinnar, ganga um eyðimörk.

Því næst er kveikt á sjálfstortímingu annars þeirra og í kjölfarið birtast svo skilaboðin „1993-2021“ sem tákna starfstíma sveitarinnar ásamt því sem nýtt lag frá þeim félögum er spilað undir.

Útgefandi dúósins hefur staðfest við erlenda miðla að samstarf þeirra Bangalters og Homem-Christos sé á enda, en hefur ekki viljað gefa frekari skýringar á þeirri ákvörðun.

Daft Punk kom fram á sjónarsviðið árið 1993 með tímamótaplötunni Homework sem hafði að geyma smelli eins og Around the world og Da funk. Síðar kom út Discovery sem skaut þeim enn hærra upp á stjörnuhimininn. Síðar kom platan Human after all og tónleikaplatan Alive 2007 auk Tron: Legacy platan fyrir samnefnda kvikmynd.

Árið 2013 var svo árið sem veldi Daft Punk sprakk út með fjórðu stúdíóplötunni Random access memories og smellinum Get lucky. Lagið fór í efsta sæti vinsældalista í 32 löndum og platan hlaut fimm Grammyverðlaun árið 2014. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson