„Vona að áheyrnarprufan verði á EM á Englandi 2022“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. október 2020 15:00 Íslenska kvennalandsliðið er ósigrað í undankeppni EM. vísir/vilhelm
Þorkell Máni Pétursson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, hefur litlar áhyggjur af ungu leikmönnunum í íslenska kvennalandsliðinu sem mætir Svíþjóð í Gautaborg í undankeppni EM annað kvöld. Um er að ræða hálfgerðan úrslitaleik um 1. sætið í F-riðli undankeppninnar. Svíþjóð er með sextán stig á toppi riðilsins, þremur stigum á undan Íslandi sem á leik til góða. Þær Alexandra Jóhannsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru í byrjunarliðinu í fyrri leiknum gegn Svíþjóð sem lyktaði með 1-1 jafntefli. Þær stóðu fyrir sínu og gott betur og Máni á ekki von á neinu öðru í leiknum á morgun. „Kannski er þetta einhvers konar áheyrnarprufa fyrir þær því þær hafa bara spilað í Pepsi Max-deildinni hér heima. Það verða reyndar engir áhorfendur í Svíþjóð þannig að ég vona að áheyrnarprufan verði á EM á Englandi 2022 þar sem verða 30 þúsund manns á vellinum. Ég hef engar áhyggjur af því að þær standi ekki undir því þessar þrjár, Alexandra [Jóhannsdóttir], Sveindís [Jane Jónsdóttir] og Karólína [Lea Vilhjálmsdóttir]. Þetta eru óttalaus kvikindi ef svo má að orði komast,“ sagði Máni í samtali við Ríkharð Óskar Guðnason í Sportpakkanum. Hann segir að Svíar séu sigurstranglegri, enda með gríðarlega sterkt lið sem endaði í 3. sæti á HM í Frakklandi í fyrra. Jafntefli yrðu frábær úrslit „Möguleikarnir eru ekkert sérstaklega miklir ef við horfum alveg raunsætt á þetta. Það vantar Dagnýju [Brynjarsdóttur] og það er rándýrt því við þurfum alla okkar lykilmenn í svona leiki. Við höfum ekki úr sama fjölda af leikmönnum að moða og Svíþjóð,“ sagði Máni. „Sigurlíkur okkar eru ekkert sérstaklega miklar en við getum alveg náð jafntefli með smá heppni. Og það væru frábær úrslit.“ Máni segir að íslenska liðið hafi verið djarft og hugrakkt í fyrri leiknum gegn Svíþjóð. Hann segir að sé væntanlega farsælast að setja öryggið á oddinn í leiknum annað kvöld. Þurfum að koma fleiri leikmönnum í bestu deildirnar „Mér fannst við vera mjög hugrakkar á Laugardalsvellinum, sérstaklega í seinni hálfleiknum þar sem við sóttum á þær. Við skulum átta okkur á því að það eru miklu fleiri leikmenn Svíanna að spila í sterkustu deildum heims heldur en Íslendingarnir. Það er kannski mál sem við þurfum að skoða sérstaklega, hvort við þurfum ekki að koma fleiri leikmönnum í sterkustu deildir heims,“ sagði Máni. „Ég myndi alltaf leggja þetta þannig upp að fara aftarlega á völlinn, bíða eftir þeim þar og beita skyndisóknum. Ef við þurfum að setja mark gerum við það.“ Klippa: Sportpakkinn - Máni um leikinn gegn Svíum
EM 2021 í Englandi Mest lesið Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn Beverley í fjögurra leikja bann Körfubolti Sveindís hafði betur gegn Glódísi Fótbolti Evrópudraumur Aston Villa úti Fótbolti „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM Handbolti „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Handbolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Atalanta og Leverkusen í úrslit Evrópudeildarinnar Fótbolti „Persónulegt markmið að skora einu sinni á móti öllum liðum“ Fótbolti Fleiri fréttir Sveindís hafði betur gegn Glódísi Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Evrópudraumur Aston Villa úti Atalanta og Leverkusen í úrslit Evrópudeildarinnar „Persónulegt markmið að skora einu sinni á móti öllum liðum“ Fullt hús stiga hjá Njarðvíkingum og tvö rauð á Akureyri Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Stefán Teitur og félagar bikarmeistarar Sveindís bikarmeistari annað árið í röð Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Katla með tvennu í Íslendingaslag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Hafnað af Stoke og var stuðningsmaður Real síðast Fyrsta sumarmót ársins í opinni dagskrá í kvöld Tekst Glódísi að hrifsa „barnið“ af Popp í dag? Sjáðu mörk óvæntu hetjunnar og þegar allt trylltist á Bernabéu „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Fiorentina aftur í úrslit Sambandsdeildarinnar Gamli FH-ingurinn kom Fredrikstad áfram í bikarnum Dæmdur fyrir aðstoð við morð en valinn í landslið Síle Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp Sjá meira
Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn
Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn