Börsungar kvarta yfir dómaranum í El Clásico sem á að hafa fengið Real Madrid-uppeldi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. október 2020 13:30 Juan Martínez Munuera bendir á vítapunktinn eftir að hafa ráðfært sig við myndbandsdómara. getty/Alex Caparros
Börsungar eru afar ósáttir við vítaspyrnuna sem Real Madrid fékk í El Clásico á Nývangi á laugardaginn. Uppi eru getgátur um að dómari leiksins, Juan Martínez Munuera, hafi verið hliðhollur Real Madrid sem vann leikinn, 1-3. Sergio Ramos kom Real Madrid í 1-2 eftir rúmlega klukkutíma leik með marki úr vítaspyrnu sem dæmd var á Clement Lenglet fyrir að brjóta á Ramos sjálfum. Martínez Munuera sá ekki brotið en dæmdi víti eftir að hafa ráðfært sig við myndbandsdómara. Í spænska blaðinu SPORT, sem er hliðhollt Barcelona, er greint frá því að faðir Martínez Munuera, Juan Ramon, sé stuðningsmaður Real Madrid. Ekki nóg með það heldur hafi hann stofnað stuðningsmannafélag Real Madrid á Benidorm. Martínez Munuera hefur verið dómari í ellefu ár. Meðfram dómgæslunni starfar hann sem laganna vörður á Alicante. Bróðir hans, Miguel Martínez, var aðstoðardómari í El Clásico um helgina. Barcelona hefur sent inn kvörtun til spænska knattspyrnusambandsins vegna frammistöðu dómranna í El Clásico. Auk þess að fá á sig umdeilda vítaspyrnu vildu Börsungar sjálfir fá tvö víti í leiknum. Eftir leikinn kvartaði Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Barcelona, sáran og sagði að myndbandsdómgæsla væri bara notuð til að dæma gegn Börsungum. „Það er alltaf svona peysutog í gangi í teignum og mér fannst Ramos brjóta fyrst á Lenglet. Það var vissulega peysutog en ekki svo mikið að hann þyrfti að falla í jörðina eins og hann gerði. Að mínu mati þá var þetta ekki vítaspyrna,“ sagði Koeman. „Við erum búnir að spila fimm leiki og VAR hefur bara verið notað gegn okkur. Það hefur aldrei neitt fallið með okkur.“ Eftir fimm leiki er Barcelona í 12. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með sjö stig. Real Madrid er í 2. sæti með þrettán stig eftir sex leiki.
Spænski boltinn Tengdar fréttir Ronald Koeman um VAR: Bara notað til að dæma gegn Barcelona Myndbandadómgæsla hefur ekki hjálpað Barcelona mikið til þess á tímabilinu og enn eitt dæmið um það var í El Clasico um helgina. 26. október 2020 10:31 Sjáðu vítaspyrnu Ramos, markið hjá ungstirninu og hin mörkin úr El Clasico Real Madrid gerði góða ferð til Katalóníu í gær er liðið vann 3-1 sigur á Barcelona í einum stærsta leik ársins á Spáni; El Clasico. 25. október 2020 08:02 Madridingar sóttu þrjú stig á Nou Camp Real Madrid hafði betur í stórveldaslagnum á Spáni. 24. október 2020 15:59 Mest lesið Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn Beverley í fjögurra leikja bann Körfubolti Sveindís hafði betur gegn Glódísi Fótbolti Evrópudraumur Aston Villa úti Fótbolti Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM Handbolti „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Handbolti „Persónulegt markmið að skora einu sinni á móti öllum liðum“ Fótbolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Atalanta og Leverkusen í úrslit Evrópudeildarinnar Fótbolti Dagksráin í dag: Fótboltinn í fyrirrúmi Sport Fleiri fréttir Sveindís hafði betur gegn Glódísi Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Evrópudraumur Aston Villa úti Atalanta og Leverkusen í úrslit Evrópudeildarinnar „Persónulegt markmið að skora einu sinni á móti öllum liðum“ Fullt hús stiga hjá Njarðvíkingum og tvö rauð á Akureyri Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Stefán Teitur og félagar bikarmeistarar Sveindís bikarmeistari annað árið í röð Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Katla með tvennu í Íslendingaslag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Hafnað af Stoke og var stuðningsmaður Real síðast Fyrsta sumarmót ársins í opinni dagskrá í kvöld Tekst Glódísi að hrifsa „barnið“ af Popp í dag? Sjáðu mörk óvæntu hetjunnar og þegar allt trylltist á Bernabéu „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Fiorentina aftur í úrslit Sambandsdeildarinnar Gamli FH-ingurinn kom Fredrikstad áfram í bikarnum Dæmdur fyrir aðstoð við morð en valinn í landslið Síle Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp Sjá meira
Ronald Koeman um VAR: Bara notað til að dæma gegn Barcelona Myndbandadómgæsla hefur ekki hjálpað Barcelona mikið til þess á tímabilinu og enn eitt dæmið um það var í El Clasico um helgina. 26. október 2020 10:31
Sjáðu vítaspyrnu Ramos, markið hjá ungstirninu og hin mörkin úr El Clasico Real Madrid gerði góða ferð til Katalóníu í gær er liðið vann 3-1 sigur á Barcelona í einum stærsta leik ársins á Spáni; El Clasico. 25. október 2020 08:02
Madridingar sóttu þrjú stig á Nou Camp Real Madrid hafði betur í stórveldaslagnum á Spáni. 24. október 2020 15:59
Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn
Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn