Fyrsti leikurinn í rúma sjö mánuði

Sverrir Ingi Ingason í baráttu við Jack Grealish í landsleik …
Sverrir Ingi Ingason í baráttu við Jack Grealish í landsleik Íslands og Englands á síðasta ári. AFP

Sverrir Ingi Ingason landsliðsmaður í knattspyrnu spilar langþráðan leik í kvöld þegar lið hans, PAOK, sækir heim Larissa í sextán liða úrslitum grísku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Sverrir lék síðast með aðalliði PAOK í lok apríl en hann þurfti síðan að fara í aðgerð á hné og hefur verið frá keppni í rúma sjö mánuði. Hann komst þó af stað með varaliði félagsins og spilaði þrjá leiki með því í nóvember.

Sverrir er í byrjunarliði PAOK í leiknum sem hefst klukkan 19.30 en þetta er fyrri viðureign liðanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert