Guðlaug Helga Sigurðardóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér til stjórnarsetu á aukaþingi KSÍ í byrjun október.
Þetta tilkynnti hún á Facebook-síðu sinni í dag.
„Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í stjórn KSÍ þegar kosið verður á aukaþingi þess laugardaginn 2. okt. n.k. Ég er fædd og uppalin í Garðinum (Suðurnesjabæ) og kem frá mikilli fótboltafjölskyldu.
Ég hef kynnst fótboltanum frá öllum hliðum fótboltans í gegnum Knattspyrnufélagið Víði Garði alveg frá barnæsku. Hef verið leikmaður, þjálfari, stjórnarmaður, formaður, foreldri og margt fleira. Ég legg mikinn metnað í það sem ég tek mér fyrir hendur og tel mig geta nýtt krafta mína fyrir KSÍ,“ skrifaði hún.
Á mánudaginn verður birt hverjir gefa kost á sér í stjórnarkjörinu. Framboðsfrestur til formanns og í stjórn KSÍ rennur út annað kvöld.
Sem stendur er Vanda Sigurgeirsdóttir eini frambjóðandinn sem býður sig fram í formannskjör og þeir sem bjóða sig fram til setu í stjórn KSÍ eru nú átta talsins, en samtals þurfa 12 manns að sitja í stjórninni.