„Fótboltaáhugamenn á Íslandi halda með Rúnari Alex“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2021 12:30 Rúnar Alex Rúnarsson með Ainsley Maitland-Niles fyrir leik Arsenal á móti Manchester City í enska deildabikarnum í vetur. Getty/David Price Kjartan Atli Kjartansson og Henry Birgir Gunnarsson fengu Atla Viðar Björnsson til sín í hlaðvarpsþáttinn Sportið í dag og þeir ræddu meðal annars íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu og þá sérstaklega markmannsstöðuna. Næsta undankeppni, fyrir HM 2022, hefst seinna í þessum mánuði þar sem íslensku strákarnir spila þrjá útileiki á móti Þýskalandi, Armeníu og Liechtenstein. Nú er ein af spurningunum hver verði í marki íslenska liðsins í þessum leikjum. Mun Hannes Þór Halldórsson halda áfram og halda sæti sínu í byrjunarliðinu eða er kannski kominn tími á Rúnar Alex Rúnarsson sem spilar með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Kjartan Atli Kjartansson er mikill Rúnars Alex maður og finnst hann jafnvel fá ósanngjarna gagnrýni eins langt og það þær hjá íslenskum landsliðsmönnum. „Mér finnst vera minni vikmörk fyrir Rúnari að gera mistök. Við fyrirgefum Hannesi meira, bara svona inn í hjarta okkar, af því að við höfum séð hvað hann hefur gert. Ég er mjög spenntur fyrir Rúnari Alex,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson. „Rúnar Alex er ofboðslega spennandi markvörður og hann er að æfa með Arsenal þótt að hann sé ekki alltaf að spila. Hann hefur spilað nokkra leiki á þessu tímabili og þetta er Arsenal,“ sagði Kjartan Atli. „Finnst þér vera lítil þolinmæði gagnvart honum og finnst þér hann fá á baukinn ef hann gerir eitthvað,“ spurði þá Atli Viðar Björnsson. Kjartan Atli kom með dæmi um mistök hjá Hannesi þar sem Rúnar Alex hefði fengið harðari gagnrýni. „Ég upplifi það eins og að Rúnar megi gera færri mistök,“ sagði Kjartan Atli. „Ég er ekki alveg sammála. Mér finnst fótboltaáhugamenn á Íslandi halda rosalega með Rúnari Alex og séu að bíða eftir honum. Mér finnst því menn vera tilbúnir að sýna honum smá þolinmæði, gefa honum leiki og gefa honum leyfi til að gera örfá mistök,“ sagði Atli Viðar. „Mér finnst menn vera dálítið að bíða eftir því að Rúnar Alex taki skrefið, verði tilbúinn og verði síðan markmaður liðsins næstu tíu árin,“ sagði Atli Viðar. Það má finna allan þáttinn hér fyrir ofan. Sportið í dag er hlaðvarpsþáttur um íþróttir sem er aðgengilegur á hlaðvarpsvef Vísis og í útvarpsappi Bylgjunnar, FM957 og X-ins. Náðu í appið í App Store og Google Play. HM 2022 í Katar Sportið í dag Mest lesið „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Handbolti Garnacho búinn að biðjast afsökunar Enski boltinn „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ Íslenski boltinn Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Íslenski boltinn Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Enski boltinn „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Sú Besta, stórleikur á Englandi, úrslitakeppni NBA og margt fleira Sport „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ Körfubolti Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna Enski boltinn Fyrrverandi hirti fernu-boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu snilldarsnúning Hilmars Árna sem ruglaði Valsmenn í ríminu Besta-spáin 2024: Fiðringur í Firðinum Fyrrverandi hirti fernu-boltann Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Garnacho búinn að biðjast afsökunar Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ ÍA kynnir Rúnar Má til leiks Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjörnumenn komnir á blað Martínez missir af fyrri undanúrslitaleiknum vegna leikbanns Albert komst ekki á blað gegn Lazio Íslandsmeistararnir sóttu bakvörð til Bandaríkjanna Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Xabi Alonso tók metið af Conte Sería A örugg með fimm Meistaradeildarsæti Besta-spáin 2024: Brakar í heila prófessorsins Nagelsmann framlengir samning sinn við þýska landsliðið Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný Hafi ekki séð styrkleika sína nægilega vel Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Sjá meira
Næsta undankeppni, fyrir HM 2022, hefst seinna í þessum mánuði þar sem íslensku strákarnir spila þrjá útileiki á móti Þýskalandi, Armeníu og Liechtenstein. Nú er ein af spurningunum hver verði í marki íslenska liðsins í þessum leikjum. Mun Hannes Þór Halldórsson halda áfram og halda sæti sínu í byrjunarliðinu eða er kannski kominn tími á Rúnar Alex Rúnarsson sem spilar með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Kjartan Atli Kjartansson er mikill Rúnars Alex maður og finnst hann jafnvel fá ósanngjarna gagnrýni eins langt og það þær hjá íslenskum landsliðsmönnum. „Mér finnst vera minni vikmörk fyrir Rúnari að gera mistök. Við fyrirgefum Hannesi meira, bara svona inn í hjarta okkar, af því að við höfum séð hvað hann hefur gert. Ég er mjög spenntur fyrir Rúnari Alex,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson. „Rúnar Alex er ofboðslega spennandi markvörður og hann er að æfa með Arsenal þótt að hann sé ekki alltaf að spila. Hann hefur spilað nokkra leiki á þessu tímabili og þetta er Arsenal,“ sagði Kjartan Atli. „Finnst þér vera lítil þolinmæði gagnvart honum og finnst þér hann fá á baukinn ef hann gerir eitthvað,“ spurði þá Atli Viðar Björnsson. Kjartan Atli kom með dæmi um mistök hjá Hannesi þar sem Rúnar Alex hefði fengið harðari gagnrýni. „Ég upplifi það eins og að Rúnar megi gera færri mistök,“ sagði Kjartan Atli. „Ég er ekki alveg sammála. Mér finnst fótboltaáhugamenn á Íslandi halda rosalega með Rúnari Alex og séu að bíða eftir honum. Mér finnst því menn vera tilbúnir að sýna honum smá þolinmæði, gefa honum leiki og gefa honum leyfi til að gera örfá mistök,“ sagði Atli Viðar. „Mér finnst menn vera dálítið að bíða eftir því að Rúnar Alex taki skrefið, verði tilbúinn og verði síðan markmaður liðsins næstu tíu árin,“ sagði Atli Viðar. Það má finna allan þáttinn hér fyrir ofan. Sportið í dag er hlaðvarpsþáttur um íþróttir sem er aðgengilegur á hlaðvarpsvef Vísis og í útvarpsappi Bylgjunnar, FM957 og X-ins. Náðu í appið í App Store og Google Play.
Sportið í dag er hlaðvarpsþáttur um íþróttir sem er aðgengilegur á hlaðvarpsvef Vísis og í útvarpsappi Bylgjunnar, FM957 og X-ins. Náðu í appið í App Store og Google Play.
HM 2022 í Katar Sportið í dag Mest lesið „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Handbolti Garnacho búinn að biðjast afsökunar Enski boltinn „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ Íslenski boltinn Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Íslenski boltinn Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Enski boltinn „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Sú Besta, stórleikur á Englandi, úrslitakeppni NBA og margt fleira Sport „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ Körfubolti Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna Enski boltinn Fyrrverandi hirti fernu-boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu snilldarsnúning Hilmars Árna sem ruglaði Valsmenn í ríminu Besta-spáin 2024: Fiðringur í Firðinum Fyrrverandi hirti fernu-boltann Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Garnacho búinn að biðjast afsökunar Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ ÍA kynnir Rúnar Má til leiks Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjörnumenn komnir á blað Martínez missir af fyrri undanúrslitaleiknum vegna leikbanns Albert komst ekki á blað gegn Lazio Íslandsmeistararnir sóttu bakvörð til Bandaríkjanna Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Xabi Alonso tók metið af Conte Sería A örugg með fimm Meistaradeildarsæti Besta-spáin 2024: Brakar í heila prófessorsins Nagelsmann framlengir samning sinn við þýska landsliðið Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný Hafi ekki séð styrkleika sína nægilega vel Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Sjá meira