„Óþarfa ögrun“ í orðalagi á meðal ástæðna fyrir því að Ísland sat hjá

Ísland ákvað að sitja hjá í nóvembermánuði þegar þingsályktunartillaga sem fól í sér beiðni um álit Alþjóðadómstólsins í Haag á hernámi Ísraels á palestínskum svæðum var samþykkt af 4. nefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna.

Musterishæðin, al-Haram al-Sharif, í Jerúsalem er einungis kölluð síðarnefnda nafninu í tillögu sem bíður afgreiðslu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Það segir utanríkisráðuneytið „óþarfa ögrun“.
Musterishæðin, al-Haram al-Sharif, í Jerúsalem er einungis kölluð síðarnefnda nafninu í tillögu sem bíður afgreiðslu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Það segir utanríkisráðuneytið „óþarfa ögrun“.
Auglýsing

Þann 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn fór fram atkvæða­greiðsla á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna, í 4. nefnd alls­herj­ar­þings­ins, um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem fól meðal ann­ars í sér að Alþjóða­dóm­stóll­inn í Haag yrði feng­inn til að veita ráð­gef­andi álit á lög­mæti her­náms Ísra­els­ríkis á land­svæðum Palest­ínu­manna.

Ísland sat hjá við þessa atkvæða­greiðslu, en það var mat Íslands „eftir ítar­lega skoðun og sam­ráð við önnur ríki að beiðni um álit Alþjóða­dóm­stóls­ins í Haag myndi ekki styrkja til­raunir til að end­ur­vekja póli­tískt sam­tal milli Ísra­els og Palest­ínu, sem er for­senda þess að samið verði um tveggja ríkja lausn,“ sam­kvæmt svari sem Kjarn­inn fékk frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Í svar­inu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu kemur einnig fram að búast megi við að afstaða Íslands verði óbreytt við end­an­lega afgreiðslu til­lög­unnar sem fram fer síðar í mán­uð­inum á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Jafn mörg ESB-­ríki með og á móti

Til­lagan sem um ræðir var sam­þykkt í 4. nefnd­inni með 98 atkvæðum gegn 17 mót­at­kvæð­um, en 52 ríki sátu hjá. „Flest líkt þenkj­andi ríki í Evr­ópu, þar á meðal Norð­ur­lönd­in, sátu hjá eða kusu gegn álykt­un­inn­i,“ segir í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Svona féllu atkvæðin í 4. nefnd allsherjarþingsins. Mynd: Sþ

Þau ríki innan Evr­ópu­sam­bands­ins sem greiddu atkvæði með álykt­un­inni í fjórðu nefnd­inni voru Írland, Portú­gal, Belgía, Lúx­em­borg, Malta, Pól­land og Sló­ven­ía. Á móti voru Þýska­land, Tékk­land, Ítal­ía, Eist­land, Litá­en, Aust­ur­ríki og Ung­verja­land, en önnur ríki Evr­ópu sátu hjá rétt eins og Ísland. Banda­ríkin greiddu atkvæði á móti álykt­un­inni.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að afstaða Íslands hafi ráð­ist af því að það hefði verið ákjós­an­legra að bera upp beiðni um álit Alþjóða­dóm­stóls­ins „í sjálf­stæðri ályktun og efna til umræðu um það ein­göngu á for­sendum þess álita­efn­is“ og bendir ráðu­neytið á að nokkrar álits­beiðnir til Alþjóða­dóm­stóls­ins hafi verið settar fram frá alda­mótum og þær allar verið settar fram í sér­stökum álykt­unum en ekki skeytt inn í aðrar álykt­an­ir, eins og nú sé til­fellið.

Orða­lag álykt­un­ar­innar feli í sér „óþarfa ögrun“

„Þá grefur það undan stuðn­ingi við álykt­un­ina að vísað [er] til helgi­stað­ar­ins al-Haram al-S­harif án þess að vísa líka til Must­er­is­hæð­ar­inn­ar,“ segir einnig í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Must­er­is­hæð, eða Temple Mount upp á enska tungu, er það heiti sem gyð­ingar og kristnir nota um hæð­ina helgu í Jer­úsal­em, þar sem hvoru tveggja má finna al-Aqsa mosk­una og Grát­múr­inn.

Auglýsing

„Fjöl­mörg ríki breyttu afstöðu sinni til álykt­unar um Jer­úsalem á síð­asta alls­herj­ar­þingi vegna sams­konar orða­lags. Það er miður að ekki reynd­ist vilji til að breyta orða­lag­inu nú í sam­ræmi við þessi sjón­ar­mið heldur láta það fela í sér óþarfa ögrun og auka með því enn á sundr­ung­u,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Afstaða Íslands í þess­ari atkvæða­greiðslu felur sam­kvæmt ráðu­neyt­inu ekki í sér neina stefnu­breyt­ingu hvað stefnu Íslands í mál­efnum Palest­ínu varð­ar, en Ísland er eitt fárra ríkja Vest­ur­landa sem við­ur­kennir sjálf­stæði Palest­ínu­ríkis og hefur gert það frá árinu 2011.

Fjölda­póstur frá Ísr­ael á þjóð­ar­leið­toga

Ísra­els­menn hafa barist gegn til­lög­unni og fram­gangi hennar á alls­herj­ar­þing­inu.

Undir lok nóv­em­ber­mán­aðar sendi Yair Lapid for­sæt­is­ráð­herra lands­ins bréf á tugi þjóð­ar­leið­toga þar sem hann óskaði eftir því að ríki beittu áhrifum sínum gagn­vart palest­ínsku heima­stjórn­inni í því skyni að koma í veg fyrir að til­lagan sem sam­þykkt var í 4. nefnd­inni fengi loka­af­greiðslu á alls­herj­ar­þing­inu.

Í bréf­inu kom Lapid því á fram­færi að ef til­raun Ísra­els­manna til þess að koma í veg fyrir atkvæða­greiðsl­una bæri ekki árangur von­að­ist Ísr­ael eftir því að vin­veittar þjóðir greiddu atkvæði gegn til­lög­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent