Spurning um óbreytt ástand eða ekki Sylvía Hall skrifar 29. nóvember 2020 21:51 Þórólfur Guðnason mun ólíklega leggja til harðari aðgerðir þann 2. desember. Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir þróun undanfarinna daga sýna hversu lítið þurfi til svo bakslag komi í baráttuna við kórónuveiruna. Hann er nú að vinna að nýju minnisblaði til ráðherra, en segir ekki í spilunum að fara að herða aðgerðir. „
Ég held það sé kannski ekki í spilunum frá mér að fara að herða eins og staðan er núna. Ég held þetta sé aðallega spurning um það hvort við verðum með óbreytt ástand eða ekki,“ sagði Þórólfur í Víglínunni í dag. Hann segir tölur dagsins hafa verið betri en þær sem hafa verið síðustu daga, en í gær greindust tíu með veiruna og voru átta þeirra í sóttkví. Þó þurfi að fara varlega í að túlka sveiflur milli daga; færri smit greinist um helgar og tölurnar líklega marktækari næstu daga. Staðan geti þó breyst hratt. „Við erum á viðkvæmum punkti og það er einmitt það sem við höfum verið að reyna að predika og tala um undanfarið.“ Voru farin að huga að tilslökunum Þórólfur hafði skilað tillögum til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra áður en smitum fór að fjölga aftur. Hann hafði hugsað sér að leggja til einhverjar tilslakanir frá og með 2. desember þegar ný reglugerð tekur við, en þær hafi þó ekki verið verulegar. „Ég hef sagt það, og stend enn við það, að við þurfum að fara mjög hægt núna til að fá ekki afturkipp í þetta allt saman. Án þess að ég vilji fara út í einstaka þætti minna tillagna, þá held ég að það sé það sem við þurfum að endurskoða. Sérstaklega ef faraldurinn er að fara svona í öfuga átt ef eitthvað er.“ Hann segir vinnu við nýtt minnisblað vera hafna í samráði við ráðherra og fleiri. Verið sé að meta hvað sé skynsamlegt að gera í ljósi stöðunnar, en tilslakanir væru þó ekki rökrétt leið á þessum tímapunkti – og þá sérstaklega ekki svo stuttu fyrir jól. „Ég held að það væri mjög óskynsamlegt að fara út í einhverjar miklar tilslakanir á þessum tímapunkti. Það gæti þýtt það að við fengjum afturkipp í þetta og værum að berjast við faraldurinn akkúrat um jólin.“ Þórólfur vinnur nú að nýjum tillögum til heilbrigðisráðherra.Vísir/Vilhelm Spurning um óbreytt ástand eða ekki „Ég held það sé kannski ekki í spilunum frá mér að fara að herða eins og staðan er núna. Ég held þetta sé aðallega spurning um það hvort við verðum með óbreytt ástand eða ekki,“ segir Þórólfur aðspurður hvað taki við þann 2. desember. Erfitt sé að segja hvað verði fyrr en tillögur hans eru fullmótaðar, en til greina kemur að breyta lengd gildistíma reglugerðarinnar. Hann hefur sjálfur viðrað þær hugmyndir að láta þær gilda til skemmri tíma svo hægt sé að grípa inn í ef staðan breytist, en einhverjir hafa kallað eftir meiri fyrirsjáanleika í aðgerðum. „Það yrðu margir óánægðir ef við færum að gefa út reglugerð eða tilmæli sem myndi gilda mjög lengi og svo væri því bara breytt eftir eina til tvær vikur.“ Hann segist ekkert geta sagt til um hvort tilslakanir verði fyrir jólin, en það væri þó óskandi. „Ég er aðallega að hugsa um 2. desember. Ég hugsa ekki mikið lengra. Auðvitað vonast maður til að það verði ráðrúm til þess að geta aðeins slakað á, það er það sem við höfum verið að gera allan tímann.“
Víglínan Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Tengdar fréttir Fimm úr nærumhverfi Víðis og eiginkonu hans smituð Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er nú á fjórða degi veikinda eftir að hafa greinst með kórónuveirusmit. Hann segir daginn í dag vera skárri en í gær, en þá voru þau hjónin verulega slöpp. Að minnsta kosti fimm aðrir úr þeirra nærumhverfi hafa greinst með veiruna. 28. nóvember 2020 19:44 Batakveðjur streyma til Víðis en sumir hneykslaðir Óhætt er að segja að frásögn Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns á Facebook af því hvernig hann smitaðist af Covid-19 á dögunum hafi vakið mikla athygli. Langflestir þakka Víði fyrir hreinskilna frásögn en þó eru ýmsir sem gera athugasemdir við gestagang á heimili hans. Víðir lækar allar athugasemdir fólks, gagnrýnar sem hugulsamar. 29. nóvember 2020 12:01 Telur skilaboð sóttvarnayfirvalda hafa valdið kæruleysi Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur að skilaboð sóttvarnayfirvalda fyrir nokkrum vikum hafi mögulega valdið því að fólk hafi byrjað að slaka of mikið á. Hann segir mikilvægt að ekki sé spáð í framtíðina þegar um svo ótúreiknanlegan faraldur sé að ræða. Ekki sé rými fyrir tilslakanir fyrr en á næsta ári. 28. nóvember 2020 18:24 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Innlent Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Erlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Sjá meira
Fimm úr nærumhverfi Víðis og eiginkonu hans smituð Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er nú á fjórða degi veikinda eftir að hafa greinst með kórónuveirusmit. Hann segir daginn í dag vera skárri en í gær, en þá voru þau hjónin verulega slöpp. Að minnsta kosti fimm aðrir úr þeirra nærumhverfi hafa greinst með veiruna. 28. nóvember 2020 19:44
Batakveðjur streyma til Víðis en sumir hneykslaðir Óhætt er að segja að frásögn Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns á Facebook af því hvernig hann smitaðist af Covid-19 á dögunum hafi vakið mikla athygli. Langflestir þakka Víði fyrir hreinskilna frásögn en þó eru ýmsir sem gera athugasemdir við gestagang á heimili hans. Víðir lækar allar athugasemdir fólks, gagnrýnar sem hugulsamar. 29. nóvember 2020 12:01
Telur skilaboð sóttvarnayfirvalda hafa valdið kæruleysi Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur að skilaboð sóttvarnayfirvalda fyrir nokkrum vikum hafi mögulega valdið því að fólk hafi byrjað að slaka of mikið á. Hann segir mikilvægt að ekki sé spáð í framtíðina þegar um svo ótúreiknanlegan faraldur sé að ræða. Ekki sé rými fyrir tilslakanir fyrr en á næsta ári. 28. nóvember 2020 18:24