Til skoðunar að stofna rannsóknarnefnd um vistheimili síðustu áttatíu ára Sunna Sæmundsdóttir skrifar 17. nóvember 2020 12:01 Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, og formaður velferðarnefndar. visir/Vilhelm
Velferðarnefnd skoðar að leggja fram þingsályktunartillögu um stofnun rannsóknarnefndar sem yrði falið að rannsaka aðbúnað fólks á vistheimilum síðustu áttatíu árin. Nefndarformaður segir mikilvægt fyrir samfélagið að opna þessi mál. Eftir að fréttir bárust af aðbúnaði fólks í Arnarholti hafa samtökin Þroskahjálp og Geðhjálp skorað á stjórnvöld að gera víðtæka úttekt á vistheimilum. Að sögn Helgu Völu Helgadóttur, formanns velferðarnefndar, er nefndin með þetta til skoðunar og á morgun verður rætt hvort leggja eigi fram þingsályktunartillögu um stofnun rannsóknarnefndar. „Nefndin er með til skoðunar hvort fara eigi að í sambærilega rannsókn og varðandi vistheimilin. Þá var rannsóknin einskorðuð við börn sem voru vistuð á heimlum en þessi rannsókn myndi einnig lúta að börnum og fullorðnum einstaklingum sem hafa verið vistuð á opinberum og einkareknum heimilum í gegnum tíðina,“ segir Helga Vala. Frá Arnarholti á Kjalarnesi.Vísir/Vilhelm Í áskorun til nefndarinnar er lagt til að rannsóknin nái til aðbúnaðar fólks með þroskaskerðingu eða geðræn veikindi síðustu áttatíu árin. Helga Vala segir að djúp umræða um málið eigi eftir að fara fram innan nefndarinnar en telur þó að vilji sé fyrir málinu. „Miðað við þær sögur sem okkur berast í kjölfarið á fréttum um það sem gerðist í Arnarholti þá held ég að það sé full ástæða til að fara í svona rannsókn. Pósthólfin okkar eru að fyllast af sögum, bæði frá einstaklingunum sjálfum og aðstendendum.“ Henni er ekki kunnugt um hversu mörg heimili myndu falla þarna undir. „Ég held að það sé alveg nauðsynlegt fyrir samfélagið allt að við opnum á þetta. Ef það finnst ekkert misjafnt er það auðvitað mjög jákvætt, en ég óttast að svo sé ekki.“ „Það er vont að við séum að fá skýrslur sem sýna hvernig þetta var fyrir 50 árum á meðan við erum kannski minna að horfa nær okkur í tíma. Ég held að það sé mikilvægt að við skoðum líka hvað hefur verið að gerast í nútímanum,“ segir Helga Vala.
Félagsmál Alþingi Vistheimili Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Sjá meira