Bjóða hjúkrunarfræðinga í stað bóluefna frá Bretum og Þjóðverjum Eiður Þór Árnason skrifar 24. febrúar 2021 15:15 Bresk-filippseyski hjúkrunarfræðingurinn May Parsons bólusetti hina níræðu Margaret Keenan í byrjun desember sem var fyrsti almenni borgarinn til að hljóta bólusetningu. 30 þúsund hjúkrunarfræðingar frá Filippseyjum starfa í Bretlandi. EPA/ Jacob King Yfirvöld á Filippseyjum hyggjast leyfa þúsundum hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna að sækja vinnu til Bretlands og Þýskalands gegn því að ríkin gefi stjórnvöldum bóluefni við Covid-19.
Um 565 þúsund kórónuveirutilfelli hafa nú greinst á Filippseyjum sem er með því mesta í Asíu en bólusetning er enn ekki hafin. Von er á fyrstu bóluefnaskömmtunum í þessari viku og eru þeir fengnir að gjöf frá kínverskum stjórnvöldum. Filippseysk stjórnvöld hafa nýlega aflétt tímabundnu banni við því að þarlent heilbrigðisstarfsfólk þiggi störf erlendis og heimila nú fimm þúsund einstaklingum að fá erlend starfsleyfi á hverju ári. 17 þúsund hófu störf erlendis árið 2019 Mikill fjöldi filippseyskra hjúkrunarfræðinga starfar á heilbrigðisstofnunum víða í Evrópu og Bandaríkjunum sem hafa margar hverjar glímt við skort á heilbrigðisstarfsfólki. Samkvæmt tölum stjórnvalda undirrituðu hátt í 17 þúsund filippseyskir hjúkrunarfræðingar undir erlenda ráðningarsamninga árið 2019. Alice Visperas, yfirmaður alþjóðaskrifstofu filippseyska atvinnumálaráðuneytisins, sagði í samtali við fréttaveituna Reuters að yfirvöld væru opin fyrir því að semja um afléttingu takmarkananna í skiptum fyrir bóluefni frá Bretum og Þjóðverjum. Skammtarnir yrðu notaðir til að bólusetja starfskrafta áður en þeir yfirgefa landið og hundruð þúsunda Filippseyinga sem snúi nú aftur til heimalandsins. Margar milljónir Filippseyinga hafa yfirgefið landið til að sækja vinnu og betri kjör á síðustu áratugum. Er talið að hópurinn sendi um 30 milljarða Bandaríkjadala heim til fjölskyldna sinna á ári hverju, eða sem nemur tæplega fjögur þúsund milljörðum króna og skipta tekjurnar gríðarmiklu máli fyrir hagkerfi landsins. Bretar sýnt viðræðunum lítinn áhuga Félag hjúkrunarfræðinga á Filippseyjum hefur tekið illa í hugmyndir stjórnvalda og sagði formaður þeirra að þeim þyki „viðbjóðslegt að stjórnvöld færu með hjúkrunarfræðinga og heilbrigðisstarfsfólks líkt og varning eða útflutningsvöru.“ Þá hefur talskona breska heilbrigðisráðuneytisins gefið út að ekki standi til að semja við Filippseyinga um afhendingu bóluefnis gegn frekari ráðningu heilbrigðisstarfsfólks. Hún bætti við að Bretar væru þakklátir fyrir þá 30 þúsund filippseysku hjúkrunarfræðinga sem starfa innan breska heilbrigðiskerfisins. Bresk stjórnvöld hafa tryggt sér 400 milljón skammta af bóluefni gegn Covid-19 sem jafngildir sexföldum íbúafjölda. Talskonan sagði að meðal annars standi til að dreifa umfram skömmtum í gegnum Covax-samstarfið sem á að tryggja efnaminni ríkjum aðgang að bóluefni. Að sögn staðarmiðla gerðu filippseysk stjórnvöld ráð fyrir því að fá fyrstu 117 þúsund skammtana af bóluefni Pfizer og BioNTech fyrir tilstilli Covax um miðjan febrúar.
Filippseyjar Heilbrigðismál Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Innlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Fleiri fréttir Yfirvöld ábyrg fyrir dauða þúsunda einstaklinga sökum mengaðs blóðs Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Aldraður eðlisfræðingur sendur í gúlagið fyrir landráð „Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Sjá meira