„Menn velta því fyrir sér hvort gullskip hafi strandað í fjörunni við Álftanes“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2023 10:01 Landsliðsmennirnir streyma til 1. deildarmeistara Álftanes. Hörður Axel Vilhjálmsson og Haukur Helgi Pálsson hafa báðir samið við nýliðana. Samsett/Álftanes körfubolti Nýliðar Álftanes í Subway deild karla í körfubolta hafa látið til sín taka á leikmannamarkaðnum og eru þegar búnir að semja við tvo íslenska landsliðsmenn fyrir fyrsta tímabilið í efstu deild í sögu félagsins.
Hörður Axel Vilhjálmsson, lengi fyrirliði íslenska landsliðsins, kom fyrst frá Keflavík og nú síðasta kom Haukur Helgi Pálsson frá Njarðvík. Báðir hafa þeir verið í hópi bestu körfuboltamanna Íslands og fóru með landsliðinu á bæði Eurobasket mótin. Guðjón Guðmundsson hitti Hugin Frey Þorsteinsson, formann Körfuknattleiksdeildar Álftanes, og forvitnaðist um stöðu mála fyrir þetta sögulega tímabil. Álftanes er ekki hætt á markaðnum þrátt fyrir þessa rosalegu byrjun. „Menn velta því fyrir sér hvort gullskip hafi strandað í fjörunni við Álftanes,“ sagði Guðjón í inngangi sínum fyrir viðtalið. „Það hefur gert það að því leiti að við erum að fá til okkar frábæra leikmenn. Við erum að fá til okkar tvo landsliðsmenn, Hörð Axel og Hauk Helga núna, sem eru að koma inn í þennan sterka kjarna sem við höfum fyrir og vann fyrstu deildina í fyrra,“ sagði Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður Körfuknattleiksdeildar Álftanes. „Við erum ansi ánægð með okkur núna með að fá þennan hvalreka svo maður haldi myndlíkingunum áfram. Að fá þessa tvo sterku aðila til liðs við okkur og svo ætlum við líka að ná okkur í fleiri leikmenn,“ sagði Huginn Freyr. Íþróttir snúast um það að sameina fólk „Hvað gerir það að verkum að þið farið út í þessa vegferð?“ spurði Gaupi. „Í upphafi, fyrir nokkrum árum, þá förum við í þessa vegferð til að byggja upp eitthvað skemmtilegt í okkar samfélagi. Íþróttir snúast um það að sameina fólk. Það er hugsjónin sem við göngum út frá í okkar starfi. Síðan hefur bara gengið vel að byggja upp körfubolta á Álftanesi. Það hentar vel að spila körfubolta út á Álftanesi því við erum með glæsilegt hús og við erum með góða umgjörð,“ sagði Huginn. „Við höfum verið heppin með þjálfara því við vorum með Hrafn Kristjánsson áður en Kjartan Atli tók við. Það hefur líka gengið vel að laða til okkar leikmenn, núna en líka áður þegar við vorum í öðrum deildum en Subway deildinni. Þá gekk vel að fá til okkar leikmenn og við höfum bara verið lánsöm og notið mikillar gæfu,“ sagði Huginn. Reyna að búa til skemmtun „Við höfum líka verið mjög ákveðin í því að við séum að reyna að búa til skemmtun fyrir okkar nærsamfélag og það að vekja athygli á körfubolta sem er bara að blómstra um þessar mundir,“ sagði Huginn. Þeir ætla sér lengra en bara að vera með í Subway deildinni. „Við erum alla vega ekki hætt. Við erum bara rétt að byrja enda að stíga okkar fyrstu skref upp í efstu deild. Við viljum fá til okkar leikmenn. Við höfum ekki reynslu af því að vera í Subway og við viljum fá til okkar leikmenn sem koma með reynslu, sem koma með þekkingu og geta virkilega stutt við þann kjarna sem við höfum verið með til þessa í okkar liði,“ sagði Huginn. Erfitt að sækja þá heim í Forsetahöllina „Þá teljum við að við munum spila skemmtilegan körfubolta. Ég held að Álftanes muni koma á óvart í efstu deild og það verður erfitt að sækja okkur heim í Forsetahöllina,“ sagði Huginn. Það má horfa á allt viðtalið við hann hér fyrir neðan. Klippa: Huginn Freyr: Íþróttir snúast um það að sameina fólk
Subway-deild karla UMF Álftanes Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Leikmaður Newcastle tók meirapróf Enski boltinn Fleiri fréttir Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu