Slys vegna rafskútu hafi verið fyrirsjáanlegt Árni Sæberg skrifar 21. janúar 2022 18:36 Rafskúta sem lagt hefur verið almennilega. Vísir/Vilhelm Einstaklingur var fluttur á spítala til aðhlynningar eftir að hafa hjólað á rafhlaupahjól á níunda tímanum í morgun. Formaður Reiðhjólabænda segir slysið hafa verið fyrirsjáanlegt.
Birgir Birgisson, formaður félagsins Reiðhjólabændur, greindi frá slysinu í færslu í Facebookhópi félagsins í dag. Þar segir hann ástæðu slyssins hafa verið að rafskúta hafi legið á hliðinni á reiðhjólastíg með þeim afleiðingum að reiðhjólamaður hjólaði á það og kastaðist af hjóli sínu. Starfsmaður Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins staðfestir í samtali við Vísi að maður hafi verið fluttur slasaður frá gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar við Kirkjusand á níunda tímanum í morgun. Athygli vekur að það er sami staður og ökumaður rafhlaupahjóls lést á í nóvember síðastliðnum. Í atvikalýsingu í skrá slökkviliðsins segir að hjólað hafi verið á kyrrstætt rafhlaupahjól en ekki er ljóst hvort það hafi verið á reiðhjóli eða öðru rafhlaupahjóli. Ítrekað varað við slysahættu „Það er margbúið að vara rekstraraðila þessarar ákveðnu rafhjólaleigu við þessari hættu, en nánast ekkert hefur verið gert til að ala notendurna upp. Sérstöku átaki var lofað fyrir rúmu ári síðan en ekkert hefur til þess spurst síðan,“ segir Birgir í færslunni. Í samtali við Vísi segir hann umrædda rafhjólaleigu vera Hopp, sem fer með stóra markaðshlutdeild á rafhlaupahjólamarkaði. Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp í Reykjavík, frábiður sér fullyrðingar um að fyrirtækið virði öryggi notenda sinna og annarra að vettugi. „Við hvetjum til öryggis í hverjum einasta pósti og erum með markpósta þar sem við hvetjum okkar notendur til að leggja skútunum rétt. Leggðu eins og sannur Hoppari, ekki vera fyrir á göngustígum, ekki vera fyrir snjómokstri. Við látum fólk taka myndir af skútunni, okkur er mjög annt um það,“ segir hún. Hún segir þó ómögulegt að hringja í einstaka notendur sem leigt hafa skútur sem enda illa lagðar. „Það gæti alveg eins verið að einhver annar hafi fært skútuna, við myndum aldrei gera okkar notendum það.“ Hún segir að Birgir hafi ítrekað krafist þess af fyrirtækinu og henni persónulega. Ekki fengið veður af slysinu Þá segist hún ekki hafa fengið neinar fyrirspurnir varðandi slysið í morgun en að lögreglan hafi alltaf samband við sig þegar rafskútur fyrirtækisins tengjast slysum. Hún útilokar þó ekki að rafskúta á vegum fyrirtækisins hafi tengst slysi í morgun enda séu þær víða í borgarlandinu. „Hvert slys er einu slysi of mikið og við leggjum mjög mikla áherslu á það að okkar notendur séu öruggir og að skúturnar okkar séu ekki fyrir. Við erum stöðugt, allan sólarhringinn, að gæta að skútunum okkar.“ segir Sæunn Ósk að lokum.
Reykjavík Rafhlaupahjól Hjólreiðar Umferðaröryggi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira