Innlent

Segja kerfið ekki búið undir fjölgun krabba­meinstil­vika

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Krabbameinstilvikum mun fjölga en einnig þeim sem læknast eða lifa með krabbameini.
Krabbameinstilvikum mun fjölga en einnig þeim sem læknast eða lifa með krabbameini. Vísir/Sigurjón

Krabbameinsfélagið skorar á stjórnvöld að setja af stað undirbúning vegna fyrirsjáanlegrar fjölgunar krabbameinstilvika og þeirra sem sigrast á krabbameini eða lifa með krabbameini. 

Með „krabbameinsáætlun“ sé hægt að forða því að grípa þurfi til neyðarráðstafana.

Aðalfundur Krabbameinsfélagsins ályktaði um málið 13. maí síðastliðinn og hvetur til þess að heilbrigðisráðherra skipi ábyrgðaraðila til að vinna að skýrri og fjármagnaðri krabbameinsáætlun, með teymi sérfræðinga og fulltrúum sjúklinga.

Í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu segir að á komandi árum megi búast við gríðarlegri fjölgun krabbameinstilvika, fyrst og fremst vegna fólksfjölgunar og breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar.

Þannig muni tilvikum fjölga um 28 prósent til ársins 2030 og um 52 prósent til ársins 2040.

„Vegna framfara í greiningu og meðferð krabbameina mun lifendum einnig fjölga mjög mikið. Gera má ráð fyrir að þeim fjölgi úr 17.000 í dag í 23.000 árið 2030 og að þeir verði rúmlega 30.000 árið 2040. Stækkun lifendahópsins er auðvitað ekki hamfarir heldur miklar framfarir og mikið fagnaðarefni. Aukningin mun hins vegar gera gríðarlega miklar kröfur til heilbrigðiskerfisins og samfélagsins. Kerfið eins og það er í dag er ekki undir þetta búið og því verður að bregðast við,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir að ólíkt náttúruhamförum, sem Íslendingar hafi reynslu af, sé ofangreind þróun fyrirsjáanleg. Þess vegna sé ekki þörf á neyðaráætlun til að grípa til þegar byrjar að gjósa, heldur megi með krabbameinsáætlun bregðast við fyrirfram, jafnt og þétt.

„Við viljum að árangur á Íslandi sé framúrskarandi, bæði varðandi forvarnir og árangur tengdan krabbameinum, þannig að líf fólks með krabbamein og að lokinni meðferð verði eins gott og mögulegt er,“ segir í tilkynningunni.

„Það gildir einu hvort litið er til forvarna, meðferða, endurhæfinga eða þjónustu að lokinni krabbameinsmeðferð, alltaf þarf að vinna gegn ójöfnuði. Viðeigandi þjónusta og úrræði þurfa að vera tiltæk, aðgengileg og hagkvæm fyrir alla notendur. 

Það er Krabbameinsfélaginu tilhlökkunarefni að vinna með stjórnvöldum á markvissan hátt að því að fækka í hópi þeirra sem greinast með krabbamein, draga úr dauðsföllum af völdum krabbameina og bæta líf fólks með og eftir krabbamein og aðstandenda þess.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×