Fá góðan liðsstyrk fyrir slaginn við Ísland í kvöld og horfa til verðlaunasætis Sindri Sverrisson skrifar 14. janúar 2021 13:11 Alfredo Quintana, markvörður Portúgals, segir liðið ætla sér langt á HM. Bjarki Már Elísson og félagar í íslenska landsliðinu eru fyrsta hindrunin. vísir/Hulda Margrét Portúgalar hafa styrkst fyrir átökin við Íslendinga í kvöld á HM í Egyptalandi því þeir munu geta teflt fram hinum reynslumikla Gilberto Duarte, fyrrverandi leikmanni Barcelona.
Duarte missti af leikjunum við Ísland í undankeppni EM vegna meiðsla en Paulo Pereira staðfesti á blaðamannafundi í gær að skyttan yrði með í kvöld. „Gilberto er loksins kominn aftur og við verðum með hann í hópnum. Hann bætir miklu við okkar leik, sérstaklega í vörninni,“ sagði Pereira. Í viðtali við portúgalska blaðið Record fyrir mótið sagði Pereira að Portúgal gæti alveg stefnt að verðlaunum á HM, eftir að hafa lent í 6. sæti á EM í fyrra. Fram að því höfðu Portúgalar þó ekki verið á stórmóti í 14 ár. Gilberto Duarte var leikmaður Barcelona áður en hann fór til Montpellier í Frakklandi 2019.Getty/Marius Becker „Það er enginn svakalegur munur á 10. og 1. sæti. Bilið er alltaf að minnka á milli liðanna svo þetta verður mjög jafnt. Markmið geta hjálpað manni að komast lengra í stað þess að dragast aftur úr. Við höfum metnað til að komast á toppinn,“ sagði Pereira. Miklar væntingar hjá Portúgölum Leikmenn hans, fyrirliðinn Rui Silva, markvörðurinn Alfredo Quintana og línumaðurinn Luís Frade, tóku í sama streng. „Með sigri á Íslandi er liðið á góðri leið með að skrá nýjan kafla í sögubækur sínar í Egyptalandi. Þetta er snúinn leikur en hópurinn er fullur af sjálfstrausti og metnaði,“ sagði Silva og bætti við að 32-23 tapið gegn Ísland á Ásvöllum á sunnudag breytti engu þar um. „Við ætlum okkur að ná eins langt og hægt er, rétt eins og á EM í fyrra,“ sagði Quintana sem var Íslendingum erfiður þegar Portúgal vann 26-24 sigur í síðustu viku. Frade, sem er liðsfélagi Arons Pálmarssonar hjá Barcelona, segir leikinn við Ísland algjöran lykilleik: „Væntingarnar eru miklar fyrir HM og við munum taka einn leik fyrir í einu.“
HM 2021 í handbolta Mest lesið Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Körfubolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Stjarnan handtekin á leiðinni á völlinn: „Hann er á leið í fangelsi“ Golf Efsti kylfingur á heimslista á yfir höfði sér fjórar ákærur Golf Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Handbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Enski boltinn Upphafshöggi frestað vegna banaslyss skammt frá vellinum Golf Fleiri fréttir Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Sjá meira
Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Körfubolti
Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Körfubolti