Sameinuðu þjóðirnar skila auðu um kvörtun Thunberg Kjartan Kjartansson skrifar 12. október 2021 14:04 Greta Thunberg á loftslagsmótmælum í Mílanó á Ítalíu fyrr í þessum mánuði. Ungu aðgerðasinnarnir sem kvörtuðu til SÞ koma frá Argentínu, Brasilíu, Frakklandi, Þýskalandi, Indlandi, Palá, Marshall-eyjum, Nígeríu, Suður-Afríku, Svíþjóð, Túnis og Bandaríkjunum. Vísir/EPA Nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins segist ekki geta tekið afstöðu til kvörtunar Gretu Thunberg og annarra ungra loftslagsaðgerðasinna sem halda því fram að aðgerðaleysi ríkja heims brjóti á réttindum þeirra. Ungmennin hefðu átt að snúa sér að dómstólum í hverju landi fyrir sig fyrst.
Það hefur tekið nefndina um tvö ár að fara yfir kvörtun Thunberg og fjórtán félaga hennar. Þau voru á aldrinum átta til sautján ára þegar þau lögðu hana fram árið 2019. Sökuðu þau ríkisstjórni Frakklands, Tyrklands, Brasilíu, Þýskaland og Argentínu um að hafa vitað af hættunni af loftslagsbreytingum um áratugaskeið án þess að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum. Niðurstaða þeirra átján sérfræðinga í mannréttindamálum sem skipa nefndina var að búið væri að sýna fram á nægt orsakasamhengi á milli skaða sem börn verða fyrir annars vegar og aðgerðaleysi landanna fimm, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Þeir féllust aftur á móti á rök ríkjanna að ungmennin hefðu átt að leita til dómstóla í heimalöndum sínum áður en þau kvörtuðu til Sameinuðu þjóðanna. „Við vonum að þið valdeflist við jákvæðu hluta þessarar ákvörðunar og að þið haldið áfram að láta til ykkar taka í heimalöndum og svæðum ykkar sem og alþjóðlega til að berjast fyrir réttlæti í tengslum við loftslagsbreytingar,“ sagði í niðurstöðu nefndarinnar. Ungmennin gáfu lítið fyrir slíkt tal. „Ég efast ekki um að þessi niðurstaða muni plaga nefndina í framtíðinni. Þegar loftslagshamfarirnar verða jafnvel alvarlegri en þær eru nú mun nefndin sjá verulega eftir því að hafa ekki gert það rétta þegar hún hafði til þess tækifæri,“ sagði Alexandria Villasenor frá Bandaríkjunum. Lögmenn ungmennanna segja að þau ætli að leita til landsdómstóla þó að þau telji að það verði tímafrek og á endanum árangurslítil vegferð. Nefndin hafi í raun sagt börnunum að eyða fleiri árum í að bíða eftir að málum þeirra verði vísað frá dómstólum. Þrátt fyrir það gæti álit nefndarinnar verið fordæmisgefandi að því leyti að hún taldi sig getað tekið fyrir mál gegn ríkjum jafnvel þó að skaðleg áhrif af losun þeirra á gróðurhúsalofttegundum á börn ættu sér stað í öðru landi.
Loftslagsmál Sameinuðu þjóðirnar Ofbeldi gegn börnum Mannréttindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Sjá meira