Innlent

Vilja sérstaka umræðu um efnahagsmál á þingi sem fyrst

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Formaður Samfylkingarinnar spurði á Alþingi til hvers ríkið væri ef ekki til að bregðast við efnahagsástæðum og nú ríkja.
Formaður Samfylkingarinnar spurði á Alþingi til hvers ríkið væri ef ekki til að bregðast við efnahagsástæðum og nú ríkja. Vísir/Vilhelm

Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur óskað eftir því að haldin verði sérstök umræða um efnahagsmál sem fyrst í ljósi enn einnar stýrivaxtahækkunar peningastefnunefndar Seðlabankans. Meginvextir bankans standa nú í 8,75% og verðbólga mældist 9,9% í apríl.

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata vildi „neyðarfund“ sem yrði á dagskrá þingsins strax á morgun en forseti þingsins sagðist eiga von á að geta sett hann á dagskrá mögulega á þriðjudaginn í næstu viku.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, færði rök fyrir beiðni þingflokksins undir liðnum fundarstjórn forseta.

„Það þarf ekki fleiri fundi í þjóðhagsráði eða að bíða eftir niðurstöðum húsnæðishóps til að átta sig á því að það þarf að ráðast í aðgerðir sem taka gildi núna á næstu vikum. Við getum ekki beðið eftir niðurstöðum fjármálaáætlunar fyrir árið 2024 til að bregðast við ástandinu. Til hvers er ríkið ef ekki til að bregðast við ástandi eins og þessu? Til að dreifa högginu af þessu áfalli sem nú stendur yfir. Við í Samfylkingunni eru boðin og búin að styðja allar þær tillögur sem koma til, til að styrkja ungt fólk, lágtekjufólk, barnafjölskyldur sem eru að fá þetta í fangið núna og það eru þingmál sem geta komið hér inn í þingið þar sem við getum tekið á þessu ástandi,“ segir Kristrún.

Næstur í pontu var Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sem þakkaði þingforseta fyrir að taka vel í beiðni þingflokksins.

„Við þurfum að nýta mjög vel þær þrjár vikur sem eftir eru af þessu löggjafarþingi til þess einmitt að ráðast í aðgerðir til að verja heimilisbókhaldið hjá fólkinu í landinu. Við þurfum að verja leigjendur fyrir snjóhengju á leigumarkaði með breytingum á húsaleigulögum, við þurfum að hækka vaxtabætur og sérstaklega til þeirra heimila sem eru í senn tekjulág og finna fyrir æ meiri greiðslubyrði. Og við þurfum að liðka hér fyrir aukinni húsnæðisuppbyggingu, ráðast í lagabreytingar sem liggja fyrir þessu þingi, klára þær til þess að endurvekja trú fólks á að samningsmarkmið rammasamningsins um húsnæðismál geti náðst.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×