MR sigurvegarar Gettu betur í 23. skipti

MR bar sigur úr býtum í Gettu betur í 23. …
MR bar sigur úr býtum í Gettu betur í 23. sinn í kvöld.

Menntaskólinn í Reykjavík bar sigur úr býtum í úrslitakeppni Gettu betur sem sýnd var á RÚV í kvöld. 

Sigurliðið hafði betur gegn Fjölbrautaskóla Suðurlands með 36 stigum en FSu hlutu 25 stig.

Keppnin fór fram í 39. skipti og var haldin í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ að þessu sinni. 

Þetta er í 23. sinn sem skólinn fer með sigur af hólmi í Gettu betur og er hann því sigursælasti menntaskólinn í sögu keppninnar. MR vann einnig í fyrra og snúa menntskælingar því aftur suður í Reykjavík með Hljóðnemann, bikar Gettu betur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert