Hólmbert lítur vel út fyrir seinni hlutann

Hólmbert Aron Friðjónsson hefur snúið til baka til Holstein Kiel …
Hólmbert Aron Friðjónsson hefur snúið til baka til Holstein Kiel úr láni frá Lilleström í Noregi. Ljósmynd/Holstein Kiel

Hólmbert Aron Friðjónsson hefur verið í fínu standi í undirbúningsleikjum fyrir seinni hluta tímabilsins í þýsku B-deildinni.

Hólmbert, sem kominn er aftur til Holstein Kiel eftir að hafa verið á láni hjá norska félaginu Lilleström allt síðasta ár, skoraði í síðasta æfingaleik liðsins áður en alvaran hefst á ný, en Holstein Kiel tapaði leiknum, 2:1.

Þetta var annað mark Hólmberts í síðustu þremur leikjum fyrir þýska liðið. Keppni í B-deildinni hefst á ný um næstu helgi. Holstein Kiel tekur þá á móti Greuther Fürth. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvort Hólmbert fái að spreyta sig í leiknum.

Holstein Kiel er í 8. sæti B-deildarinnar með 25 stig, fimm stigum frá umspilssæti um að komast upp í 1. deildina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert