Þriggja ára dóttir Kylie Jenner gefur út eigið vörumerki Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 21. júlí 2021 12:08 Hin þriggja ára gamla Stormi er reynslumeiri í viðskiptalífinu en mörg önnur þriggja ára börn. Getty/Gotham Hin þriggja ára gamla Stormi Webster, dóttir viðskiptamógúlsins og raunveruleikastjörnunnar Kylie Jenner, mun feta í fótspor móður sinnar og gefa út sitt eigið vörumerki von bráðar.
Þetta kemur fram í nýlegu YouTube-myndbandi Jenner þar sem hún veitir áhorfendum innsýn inn í rekstur snyrtivörufyrirtækis síns Kylie Cosmetics. Jenner stofnaði fyrirtækið árið 2014, þá aðeins 17 ára gömul og er hún í dag metin á 700 milljónir Bandaríkjadollara. Í myndbandinu kemur fram að hin þriggja ára Stormi mæti gjarnan með mömmu sinni í vinnuna og á hún meðal annars sína eigin skrifstofu í höfuðstöðvum fyrirtækisins sem hún sýnir áhorfendum. Stormi er einnig sögð sitja fundi með móður sinni og leika sér með snyrtivörur. „Svo er hún reyndar að gefa út leynilegt vörumerki bráðlega. Við höfum verið að vinna að því í svolítinn tíma en það gengur hratt núna,“ tilkynnir Jenner í myndbandinu. Orðrómur fór af stað fyrir nokkrum vikum þegar Jenner deildi mynd af dóttur sinni í baði og merkti Instagram-reikninginn @kyliebaby. Um er að ræða samþykktan Instagram-reikning sem er með rúmlega 850 þúsund fylgjendur en inniheldur engar myndir. Allt bendir til þess að um væntanlegt vörumerki sé að ræða. Jenner er sögð hafa sótt um leyfi fyrir vörumerkinu árið 2019 sem talið er að muni innihalda vörur eins og kerrur, bleyjutöskur, krem, naglalökk og fatnað. View this post on Instagram A post shared by Kylie 🤍 (@kyliejenner) Stormi er reynslumeiri í viðskiptalífinu en mörg önnur þriggja ára börn, en hún hannaði förðunarvörulínu ásamt móður sinni fyrr á árinu. Línan einkenndist fjólubláum lit og fiðrildum sem eru í uppáhaldi hjá Stormi. Jenner sagði frá því í myndbandinu að það hefði mótað sig mikið að hafa verið umkringd sterkum kjarnakonum alla ævi og það sama mætti segja um Stormi. „Ég trúi því að maður mótist af þeim sem maður er umkringdur. Stormi á svo sterkar konur í lífi sínu til þess að líta upp til,“ sagði hin 23 ára gamla Jenner. Hún hefur áður greint frá því að hún leggi mikið upp úr því í uppeldinu að Stormi verði klár, góð og metnaðarfull. Hún muni erfa móður sína og ef til vill taka yfir Kylie Cosmetics einn daginn. Starfsmaður Kylie Cosmetics sagði í myndbandinu að aldrei væri að vita nema þau myndu öll vinna fyrir Stormi einn daginn. Hér að neðan má sjá myndbandið í heild sinni.
Hollywood Mest lesið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“ Makamál Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna Lífið Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Lífið „Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“ Lífið „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ Lífið Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Lífið Dulin blessun að missa Baðhúsið Lífið 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Lífið Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Lífið Gallstasi á meðgöngu: „Ég grátbað um að ég yrði sett af stað“ Áskorun Fleiri fréttir Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni Ósáttir karlar flautuðu á Fríðu Dulin blessun að missa Baðhúsið „Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“ Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Vandamálaráðuneytið únefndi hinn fimmtán ára Viðar til sigurs Hugsar oft til fyrstu ástarinnar vegna ástandsins í Íran Krakkatían: Celebs, sumar og forseti Íslands Sveitarstjóri og sauðfjárbóndi fóru á kostum Hvetur fólk til að nota sólarvörn eftir krabbameinsgreiningu Metmæting á tískusýningu útskriftarnema LHÍ Mynd ársins af palestínskum flóttamanni Ætlar hvorki að hætta að vinna né opna kaffihús Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu Karl konungur snýr aftur úr veikindaleyfi Fréttatía vikunnar: Þyrlur, forsetaframbjóðendur og skemmdarverk „Það er einmanalegt að missa móður“ Trúlofuðust á gjörgæslunni eftir bílslys á Íslandi Ellý snýr aftur vegna fjölda áskorana Ætlað að auka umræðu og sýnileika leiðsöguhunda Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Fágæt og falleg eign við Flókagötu Aron passaði varla inn í bílinn Sjá meira