Streymisveitan Viaplay hefur fengið Rúrik Gíslason, fyrrum landsliðsmann í fótbolta, til liðs við sig til að leiða knattspyrnuumfjöllun hennar á Íslandi frá tímabilinu 2021/2022.

Viaplay tryggði sér nýlega rétt til að sýna frá Þjóðadeild Evrópu, undankeppni EM karla í knattspyrnu sem og Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildina og UEFA Conference League á tímabilinu 2021/22–2023/24, en sýningarréttnum á evrópukeppnum félagsliða er deilt með Sýn.

„Síðan ég tók ákvörðun um að leggja skóna á hilluna hef ég verið að leita mér að spennandi og áhugaverðri áskorun. Þegar Viaplay skýrði mér frá framtíðarhugmyndum og plönum varð ég strax til í að taka þátt í þessu verkefni,” er haft eftir Rúrik í fréttatilkynningu Viaplay. „Ég hlakka mikið til að verða hluti af teymi Viaplay og við ætlum að leggja allt í að færa áhorfendum heimsklassaumfjöllun um fótbolta á Íslandi. Ég tel mig hafa mikið fram að færa með reynslu minni af atvinnumennsku í fótbolta og er spenntur að leggja mitt af mörkum í skemmtilegri, grípandi og áhugaverðri umfjöllun um Meistaradeildina, Evrópudeildina, Conference League sem og leiki íslenska landsliðsins.

Miðjumaðurinn fyrrverandi lék með íslenska landsliðinu á HM í Rússlandi 2018. Hann lauk ferli sínum sem atvinnumaður í knattspyrnu í árslok 2020 og hafði þá meðal annars leikið fyrir Charlton, FC Nürnberg og og FCK í Danmörku þar sem hann spilaði í Meistaradeild Evrópu á tímabilinu 2014/15.

,,Þegar NENT Group/Viaplay tryggir sér réttindi til að sýna frá stórum knattspyrnuviðburðum líkt og tilfellið er hér, leggjum við áherslu á að byggja upp öflugt teymi til að leiða umfjöllun um þessa viðburði. Við höfum verið leiðandi í framleiðslu á íþróttaefni á Norðurlöndunum í meira en 20 ár og höfum í hyggju að vera það einnig á Íslandi. Þar sem Rúrik hefur nýlokið ferli sínum sem atvinnumaður í knattspyrnu kemur hann með ferska nálgun á viðfangsefnið, mikla þekkingu og byggir þar að auki á eigin reynslu af því að leika knattspyrnu á hæsta gæðaflokki,“ segir Kim Mikkelsen, yfirmaður íþróttamála hjá NENT.