Í fyrrahaust dvaldi ég í borginni Kraká í Póllandi um nokkurt skeið, í höfundaresidensíu.
Húsið sem ég bjó í heitir Łaski húsið. Á pólsku er stafurinn Ł borinn fram eins og v eða w. Þegar maður segir Łaski húsið hljómar það svolítið eins og „vaskahúsið“. En Łaski húsið er nú aldeilis ekkert vaskahús, raunar er það afskaplega virðulegt setur.
Húsið stendur við hliðina á höll sem heitir Villa Decjusz. Bæði húsin standa í garði sem heitir Park Decjusza.
Í gamla bænum í Kraká eru kirkjur sem eru meira en þúsund ára gamlar.
Łaski húsið var byggt árið 1590, þannig að það er fjögur hundruð og þrjátíu ára gamalt.
Svona tölur geta gert stúlku (sem kemur frá landi þar sem allir þekkja einhvern sem þekkti einhvern sem bjó alla ævi í haug af grasi og mold) bláa í framan og undarlega í hausnum.
Þetta uppgötvaði ég:
Standirðu fyrir utan Villu …
Athugasemdir