Upplifun íbúa New York 11. september 2001: „Ógnarástand og fólk var lengi að jafna sig“ Þorgils Jónsson skrifar 11. september 2021 15:27 Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur rifjar upp daginn örlagaríka. Hann segir óvissu og ógn hafa vomað yfir borgarbúum vikurnar og mánuði eftir árásirnar, en borgin hafi skriðið saman smátt og smátt. „Þetta var eins fallegur haustdagur og gerist í New York. Blár himinn og haust í lofti,“ segir Ólafur Jóhann Ólafsson aðspurður um morguninn örlagaríka, 11. september 2001. Hann var þá, sem nú, búsettur í New York með fjölskyldu sinni. „
Þetta var fyrsti skóladagurinn ársins hjá sonum okkar, sem voru 6 og 8 ára á þessum tíma, svo við hjónin fylgdum þeim í skólann. Þaðan fór ég með leigubíl niður 5th Avenue á leið á skrifstofuna mína í Rockefeller Center.“ Einmitt þar í leigubílnum heyrði Ólafur í útvarpinu af fyrri flugvélinni. „Við héldum að þetta hefði verið einhver útsýnisflugvél – einhver rella – sem hefði fyrir slysni farið í turninn. Svo var ég kominn upp á skrifstofu þegar seinni flugvélin fór á syðri turninn. Þaðan horfði ég niður eftir eyjunni, fylgdist með turnunum og sá þá falla.“ Ólafur segir að forgangsatriði hafi verið að ganga úr skugga um að starfsfólk fyrirtækisins væri óhult. Meðal annars var starfsfólk fréttastofu CNN að störfum í hringiðunni í kringum World Trade Center. Mikil óvissa og viðbúnaður á götum úti Hann bætir því við að mikil óvissa hafi einkennt þennan dag, þar sem enginn vissi hvað væri framundan eða hvort fleiri árásir væru í vændum. Á göngu hans heim að loknum vinnudegi hafi loftið verið lævi blandið. Hermenn og skriðdrekar á götum úti og andrúmsloftið að kvöldi dags í hrópandi mótsögn við morguninn. Ólafur segir að atburðirnir þennan dag hafi umturnað lífi flestra borgarbúa næstu vikur og mánuði á eftir. „Það var þessi endalausi ótti um að eitthvað meira væri í gangi,“ segir hann „Fólk var að koma sér upp bátum við Hudson-ána og í Austuránni ef það þyrfti að flýja borgina snögglega. Það var svona ógnarástand og fólk var lengi að jafna sig, en borgin skríður saman eins og hún gerir yfirleitt. En það eimir enn eftir af þessu, sérstaklega á þessum árstíma. Þetta hafði auðvitað gríðarleg áhrif á sálarlífið hér í borginni.“ Alltaf ofarlega í huga New York-búa Ólafur segist aðspurður ekki viss um að stemmningin sé nokkuð frábrugðin einmitt núna, þegar tuttugu ár eru frá hörmungunum, frá því sem verið hefur fyrri ár. Borgin sé að nú jafna sig á farsótt síðasta árs, en atburðirnir 11. september lifi ávallt með New York-búum. „Þetta er fólki alltaf ofarlega í huga. Þetta er einn af þessum bautasteinum á lífsleiðinni sem fólk staldrar við.“
Bandaríkin Hryðjuverkin 11. september 2001 Tengdar fréttir Alþjóðakerfið eftir 11. september 2001: Bandaríkin grófu undan eigin stöðu með viðbrögðunum Strax að kvöldi 11. september 2001 voru George W. Bush og hans fólk viss um að Al-Qaeda stæði bak við árásirnar mannskæðu. Þjóðaröryggisráðið kom saman, en þar var einhugur um að Bandaríkin þyrftu að svara fyrir sig. Al-Qaeda og Osama Bin Laden hefðu skákað í skjóli Talibana í Afganistan í áraraðir en nú yrði gripið til aðgerða. Enginn greinarmunur yrði gerður á milli Al-Qaeda og Talibana og önnur ríki skyldu láta sér það að kenningu verða. 11. september 2021 11:11 20 ár frá 11. september 2001: Dagurinn sem allt breyttist Sum andartök eru þess eðlis að tilvera þess sem upplifir þau verður aldrei söm á eftir. Fá hafa þó skekið heimsbyggðina jafn skyndilega og jafn afgerandi og þegar tvær farþegaþotur skullu á Tvíburaturnunum við World Trade Center á Manhattan á heiðskírum þriðjudagsmorgni fyrir réttum 20 árum, hinn 11. september árið 2001. 11. september 2021 06:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Alþjóðakerfið eftir 11. september 2001: Bandaríkin grófu undan eigin stöðu með viðbrögðunum Strax að kvöldi 11. september 2001 voru George W. Bush og hans fólk viss um að Al-Qaeda stæði bak við árásirnar mannskæðu. Þjóðaröryggisráðið kom saman, en þar var einhugur um að Bandaríkin þyrftu að svara fyrir sig. Al-Qaeda og Osama Bin Laden hefðu skákað í skjóli Talibana í Afganistan í áraraðir en nú yrði gripið til aðgerða. Enginn greinarmunur yrði gerður á milli Al-Qaeda og Talibana og önnur ríki skyldu láta sér það að kenningu verða. 11. september 2021 11:11
20 ár frá 11. september 2001: Dagurinn sem allt breyttist Sum andartök eru þess eðlis að tilvera þess sem upplifir þau verður aldrei söm á eftir. Fá hafa þó skekið heimsbyggðina jafn skyndilega og jafn afgerandi og þegar tvær farþegaþotur skullu á Tvíburaturnunum við World Trade Center á Manhattan á heiðskírum þriðjudagsmorgni fyrir réttum 20 árum, hinn 11. september árið 2001. 11. september 2021 06:01