Fótbolti

4 dagar í EM: Ein frægasta vítaspyrna sögunnar vann EM fyrir 45 árum síðan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Antonin Panenka tryggir Tékkum sigur á Vestur-Þýskalandi í vítakeppni og um leið Evrópumeistaratitilinn í fyrsta og eina skiptið.
Antonin Panenka tryggir Tékkum sigur á Vestur-Þýskalandi í vítakeppni og um leið Evrópumeistaratitilinn í fyrsta og eina skiptið. Getty/Karl Schnörrer

Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Tékkar unnu sinn fyrsta og eina Evrópumeistaratitil árið 1976 en þá voru þeir líka með Slóvaka með sér í liði og eina ískalda vítaskyttu.

Tékkóslóvakía endaði langa sigurgöngu Þjóðverja á EM 1976 en úrslitakeppnin var spiluð í Júgóslavíu þetta sumar og innihélt bara fjögur lið. Þýska landsliðið mætti til leiks sem ríkjandi heims- og Evrópumeistari frá 1974 og 1972.

Þjóðverjar komust enn á ný úrslitaleikinn eftir sigur á heimsmönnum í Júgóslavíu í framlengdum undanúrslitaleik en að þessu sinni urðu þeir að sætta sig við tap.

Tékkar höfðu hins vegar unnið Holland, silfurliðið frá HM 1974, í framlengdum undanúrslitaleik, og tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn með sigri á Þýskalandi í vítakeppni.

Þjóðverjar söknuðu örugglega markahróksins Gerd Müller sem hafði skorað sigurmarkið í úrslitaleik HM 1974 og tvö mörk í úrslitaleik EM 1972. Der Bomber hætti í landsliðinu eftir HM 1974 þrátt fyrir að vera bara 28 ára gamall.

Það var reyndar annar Müller, Dieter Müller, sem skoraði mest allra í úrslitakeppninni eða fjögur mörk. Hann tók þó ekki víti í vítakeppninni.

Tékkar byrjuðu og skoruðu úr fjórum fyrstu vítaspyrnum sínum. Þjóðverjar jöfnuðu í þrjú fyrstu skiptin en í því fjórða þá skaut Uli Hoeness yfir markið.

Tékkar gátu því tryggt sér Evrópumeistaratitilinn með því að skora úr fimmtu vítaspyrnu sinni. Antonín Panenka steig þá fram og hefur síðan verið hluti af knattspyrnusögunni. Það var ekki bara að hann tryggði þjóð sinni Evrópumeistaratitilinn heldur hvernig hann fór að því.

Antonín Panenka beið eftir því að Sepp Maier, markvörður þýska landsliðsins, skutlaði sér til vinstri og lyfti síðan boltanum í mitt markið. Tékkar voru orðnir Evrópumeistarar og svona vítaspyrnur hafa síðan verið kallaðar Panenka vítaspyrnur.

„Eftir hverja æfingu þá voru ég og markvörðurinn okkar alltaf að æfa vítaspyrnur. Við lögðum undir súkkulaði eða bjór í hvert skipti. Hann er mjög góður markvörður og þetta varð því mér mjög dýrt. Stundum lagðist ég á koddann og reyndi að finna út leiðir til að vinna hann,“ sagði Antonín Panenka í samtali við heimasíðu UEFA.

„Ég byrjaði rólega að þróa þetta á æfingum. Ég fór síðan að bæta á mig af því ég vann öll veðmálin. Ég byrjaði að nota þetta í vináttuleikjum en svo fullkomnaði ég þetta og notaði í deildarleikjunum. Hápunkturinn var þegar ég notaði þetta á EM. Þetta var auðveldasta og einfaldasta leiðin til að skora,“ sagði Panenka.


EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×