Ronaldo „busaður“ kvöldið fyrir fyrsta leikinn með Man. United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. september 2021 11:00 Cristiano Ronaldo fagnar marki fyrir Manchester United á móti Newcastle United um helgina. AP/Rui Vieira Það þarf ekki að kynna neinn fyrir Cristiano Ronaldo en hann þurfti þó að kynna sjálfan sig fyrir nýju liðsfélögunum í Manchester United.
Ronaldo snéri aftur á Old Trafford um helgina og skoraði tvívegis í sínum fyrsta leik með United liðinu síðan 2009. Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, henti honum beint inn í byrjunarliðið og portúgalska goðsögnin launaði honum með tveimur mörkum. Solskjær var kátur eftir leik og sagði frá því að Ronaldo var í raun „busaður“ af nýju liðsfélögunum sínum kvöldið fyrir fyrsta leikinn með United. Ole Gunnar Solskjaer reveals what Cristiano Ronaldo said during Man Utd initiationhttps://t.co/woOu0AD0ys pic.twitter.com/ySRPKx6paU— Mirror Football (@MirrorFootball) September 11, 2021 Liðsfélagar létu Ronaldo nefnilega standa upp fyrir framan allt liðið og kynna sig fyrir öllum hópnum sem er náttúrulega mjög fyndið enda þarna á ferðinni einn frægasti íþróttamaður heims. „Allir sem koma inn í liðið okkar þurfa að standa upp, kynna sig og segja frá sjálfum sér. Það þekktu kannski ekki allir nafnið hans en þeir gera það örugglega núna,“ sagði Ole Gunnar mjög léttur eftir Newcastle leikinn. ESPN segir frá. „Hann sagðist heita Cristiano og þar með er það upptalið sem ég er tilbúinn að gefa upp af ræðunni hans,“ sagði Solskjær. „Andrúmsloftið í kringum félagið hefur verið rafmagnað og stuðningsmennirnir hafa notið síðustu tíu daga. Það voru miklar væntingar gerðar til liðsins í dag og hann olli ekki vonbrigðum,“ sagði Solskjær. „Cristiano lyftir öllum upp. Hann fær alla til að einbeita sér og setur kröfur á sjálfan sig sem síðan setur pressu á liðsfélaga hans og okkur sem stjórna. Það er þessa vegna sem hann hefur afrekað svona mikið á sínum ferli,“ sagði Solskjær. He s too old.""The Premier League is too fast.""He's not what Man United need. Never write off Ronaldo pic.twitter.com/tYejE1DglK— ESPN FC (@ESPNFC) September 11, 2021 „Hann hefur vissulega þróast sem leikmaður og er allt annar leikmaður en þegar hann var hér síðast. Hann er samt miskunnarlaus og magnaður markaskorari. Hann er mun betri fótboltamaður en þegar hann var hér. Hann þefar uppi stóru stundirnar í leikjum og veit hvenær á að mæta í vítateiginn. Mér fannst hann spila mjög þroskaðan leik,“ sagði Solskjær. „Ronaldo viðurkenndi í viðtölum að hann hafi verið stressaður fyrir leikinn. Þetta var ótrúlegt. Ég var svo stressaður í byrjun leiks. Ég bjóst ekki við að þeir myndu syngja nafnið mitt allan tímann. Það sást kannski ekki að ég var stressaður en ég sver að svo var raunin. Þetta voru ótrúlegar móttökur en ég er mættur hingað til að vinna leiki og hjálpa liðinu,“ sagði Cristiano Ronaldo. „Þetta var lygileg stund. Ég vildi spila vel og sýna að ég gæti hjálpað liðinu. Þessi klúbbur er magnaður og ég er svo stoltur. Ég ætla að gera allt til að gera alla stolta af mér,“ sagði Ronaldo.
Enski boltinn Mest lesið Leik lokið: FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Handbolti Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Handbolti Leik lokið: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Enski boltinn Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn