Ráðast í risa-fjárfestingu

Ómar Svavarsson, forstjóri Securitas, og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, stjórnarformaður fyrirtækisins …
Ómar Svavarsson, forstjóri Securitas, og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, stjórnarformaður fyrirtækisins og framkvæmdastjóri Vara fasteignafélags. Árni Sæberg

Vari fasteignafélag, dótturfélag öryggisþjónustufyrirtækisins Securitas, hefur fest kaup á byggingum við Tunguháls 9-11. Seljandi er ÍSAM hf.

Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, stjórnarformaður Securitas, segir að nokkrar ástæður liggi að baki þessari ákvörðun.

„Það er mikilvægt fyrir öryggisfyrirtæki að eiga öruggt heimili. Við viljum byggja framtíðina á öruggum og sterkum grunni og horfum jákvæð fram á veginn. Við teljum kaupin efla starfsemi okkar og að með þeim gefist tækifæri á að þróast með þeim tækifærum sem við sjáum á markaðnum og þeirri tækni sem koma skal. Við teljum að húsnæðið og staðsetning þess geri okkur betur kleift að þjónusta viðskiptavini okkar eins vel og á verður kosið.“

Hún segir að heildarfjárfestingin nemi um 1,4 milljörðum króna en ráðast verður í allnokkrar breytingar á byggingunum til að laga að starfsemi fyrirtækisins.

Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK