Innlent

Ráðherra segir Pírata hafa lítinn skilning á öryggissjónarmiðum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. Sigurjón Ólason

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hafnar ásökunum um að leiðtogafundur Evrópuráðsins hafi verið nýttur til að lauma auknum vígbúnaði til lögreglunnar en segir að eftir fundinn eigi Íslendingar miklu öflugra og betur búið lögreglulið að öllu leyti.

Þingmaður Pírata, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, spurði dómsmálaráðherra á Alþingi í gær hvort leiðtogafundurinn hefði í reynd verið nýttur til að réttlæta stóraukinn vígbúnað íslensku lögreglunnar.

„Já, þetta var einhver Pírataþingmaður sem var að spyrja um þetta. Það er nú oft sem maður verður var við úr þeirri áttinni að menn hafa lítinn skilning á öryggissjónarmiðum,“ segir dómsmálaráðherra í hádegisfréttum Bylgjunnar og segir fundinn hafa verið eitt allra stærsta verkefni sem lögreglan hefði tekist á við.

Vopnaðir lögreglumenn á þaki Hörpu með kíkisriffil.Vísir/Vilhelm

„Það fylgdu þessu eðlilega mikil kaup á hinum fjölbreytta búnaði, bæði fatnaði, öryggisbúnaði, eins og vestum og öllu slíku. Og eitthvað af skotvopnum var keypt, mótorhjól og annað. Ég hef ekki skiptingu á þessum kostnaði,“ segir Jón.

Í frétt Vísis í gær kom fram að kostnaður vegna kaupa á búnaði væri um 350 milljónir króna. Ráðherrann hafnar því að fundurinn hafi verið notaður til að lauma auknum vopnabúnaði til lögreglunnar.

„Það er ekkert verið að nota hann til að lauma þessu inn til landsins. Þetta var nauðsynlegur búnaður til að geta tekist á við þetta viðamikla verkefni.“

Fleiri lögreglumótorhjól voru keypt vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins í Hörpu.Vísir/Vilhelm

„Eftir þetta erum við með lögreglulið sem er búið að fara í gegnum mikla viðbótarmenntun í vetur, mikla viðbótarþjálfun, lögreglumenn allsstaðar að af landinu. Við höfum náð að bæta búnað lögreglunnar á fjölbreyttu sviði.

Þannig að eftir stöndum við með miklu öflugra lögreglulið að öllu leyti. Betur þjálfað, betur menntað og þjálfað og betur búið.

Og ég fagna því og treysti lögreglunni fullkomlega til þess að fara með það, samkvæmt þeirri ábyrgð sem þeir sýna,“ segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.

Hér má sjá viðtal við ráðherrann um málið í heild:


Tengdar fréttir

Leiðtogafundurinn hvalreki fyrir vopnabúr löggunnar

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra greindi frá því á þinginu nú rétt í þessu að ekki stæði til að selja aftur þann búnað sem keyptur var fyrir lögregluna vegna leiðtogafundarins. Alls fóru í það um 350 milljónir króna.

Stór­aukið mynda­véla­eftir­lit í mið­borginni

Myndavélar sem keyptar voru í tilefni leiðtogafundar Evrópuráðsins verða ekki fjarlægðar. 24 nýjar vélar voru keyptar að sögn upplýsingafulltrúa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins hefur miklar áhyggjur af auknu eftirliti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×