Jóhann kemur inn í hópinn

Jóhann Berg Guðmundsson æfði af fullum krafti í gær og …
Jóhann Berg Guðmundsson æfði af fullum krafti í gær og er í hópnum í dag. Ljósmynd/Alex Nicodim

Jóhann Berg Guðmundsson er í leikmannahópi Íslands fyrir úrslitaleikinn gegn Úkraínu í kvöld en hann hefst klukkan 19.45 að íslenskum tíma í Wroclaw í Póllandi.

Jóhann missti sem kunnugt er af undanúrslitaleiknum við Ísrael á fimmtudagskvöldið vegna meiðsla og var utan 23 manna hópsins í leiknum.

Hann kemur þá í stað Arnór Sigurðssonar sem fór heim til Englands eftir að hafa meiðst í seinni hálfleiknum gegn Ísrael.

Stefán Teitur Þórðarson, sem kallaður var inn í hópinn vegna meiðslanna, er ekki á leikskýrslu í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert