Skoða leiðir til að verja Suðurnesjalínu fyrir mögulegu eldgosi Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 3. mars 2021 14:53 Upplýsingafulltrúi Landsnets segir að virkjanirnar á svæðinu gætu séð svæðinu fyrir rafmagni ef Suðurnesjalínan myndi fara út fyrirvararlaust. Vísir/Vilhelm Landsnet býr nú starfsemi sína undir nokkrar sviðsmyndir ef til eldgoss kæmi á Reykjanesskaga.
Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir að nokkrir möguleikar séu í stöðunni til að verja Suðurnesjalínu 1, sem er eina línan sem flytur raforku til og frá Suðurnesjum í dag. Suðurnesjalína 1 er undir smásjá Landsnets þessa dagana með tilliti til viðbragðsáætlana ef til eldgoss kæmi á Reykjanesi. Suðurnesjalínan liggur sunnan megin við Reykjanesbrautina frá Hafnarfirði og að Fitjum í Reykjanesbæ. „Nú erum við að skoða þessar sviðsmyndir með almannavörnum, Veðurstofunni og orkufyrirtækjum á svæðinu. Ef til þess kæmi að hraun myndi renna í átt að Suðurnesjalínu 1 þá höfum við ýmsa möguleika til að bregðast við. Það myndi eflaust taka einhvern tíma; einhverja daga fyrir hraunið að komast að línufarveginum og við erum bara að skoða hvaða möguleika við höfum í dag til að bregðast við ef svo yrði.“ Hvaða möguleikar eru í stöðunni? „Við erum að skoða til dæmis möguleikann á að verja undirstöðurnar á möstrunum; að styrkja þær með einhverjum hætti og svo er líka alveg í myndinni að kæla hraunið og beina þá hraunrennslinu frá línunni.“ Þá er einnig sá möguleiki fyrir hendi að beita varaafli. „Ef það myndi gerast að Suðurnesjalínan myndi fara út fyrirvaralaust þá höfum við þann möguleika á að geta rekið kerfið í eyjarekstri sem þýðir að virkjanirnar á svæðinu; Reykjanesvirkjun og Svartsengi gætu séð svæðinu fyrir rafmagni. Síðan erum við líka að færa til færanlegt varaafl annars staðar af landinu. Við erum að færa það nær Reykjanesinu svo við gætum brugðist við ef til rafmagnsleysis kæmi.“
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Orkumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Innlent Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Erlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Aukin virkni í gosinu Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Erlent Fleiri fréttir Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Sjá meira