Sport

Wright í úrslit eftir ótrúlegan viðsnúning

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Peter Wright er kominn í úrslit
Peter Wright er kominn í úrslit Alex Burstow/Getty Images

Peter Wright er kominn í úrslit á Grand Slam of Darts mótinu sem fram fer í Wolverhampton á Englandi þessa helgina. Skotinn sigraði Michael Smith í undanúrslitum og mætir Gerwyn Price í úrslitunum.

Wright, sem fyrir einvígið var talinn sigurstranglegri, lenti í talsverðum vandræðum framan af og á tímabili var Smith kominn með fjögurra leggja forystu, 12-8. Wright neitaði hins vegar að gefast upp og setti á svið ótrúlega kastsýningu. Hann vann heila átta leggi í röð og þar með einvígið 16-12.

Í úrslitum mætir hann manni númer eitt á heimslistanum, Gerwyn Price, sem vann nokkuð þægilegan sigur á James Wade, 16-9. Það er viðeigandi að tveir bestu menn heims í dag mætist í úrslitunum sem fara fram í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×