Brot Einars „nöturleg valdamisnotkun“

Rótin, félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda fordæmir …
Rótin, félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda fordæmir brot Einars Hermannssonar, fráfarandi formanns SÁÁ. Mynd/Rótin

Brot Einars Hermannssonar, fráfarandi formanni SÁÁ, gagnvart skjólstæðingi samtakanna er nöturleg valdamistnotkun stjórnarmanns í frjálsum félagasamtökum. Þetta segir í yfirlýsingu frá Rótinni, félagi um málefni kvenna.

Mikið af jaðarsettu fólk nýti þjónustu SÁÁ

Yfirlýsing Rótarinnar kemur í kjölfar umfjöllun Stundarinnar um Einar þar sem greint er frá því að hann hafi keypt vændi af skjólstæðingi SÁÁ á árunum 2016-2018, á meðan hann sat í stjórn samtakanna. Einar sendi svo sjálfur yfirlýsingu á fjölmiðla í gær þar sem hann sagðist hafa svarað auglýsingu konunnar á samfélagsmiðlum.

Rótin segir brot Einars með fádæmum siðlaus enda sé margt af jaðarsettasta fólki landsins í hópi þeirra sem nýti sér þjónustu SÁÁ, samtaka sem stjórnvöld hafi í rúm 40 ár treyst til að sjá um meginþorra heilbrigðisþjónustu fyrir fólk sem glímir við vímuefnavanda.

„Þó að það sé ekki hlutverk stjórnvalda að skipta sér af stjórnun frjálsra félagasamtaka, hljótum við að gera þær kröfur að hjá þeim aðilum sem veita heilbrigðisþjónustu fyrir ríki og sveitarfélög ríki hvorki ógnarstjórn né annað ofbeldi og að faglegir ferlar séu til staðar til að taka á slíkum málum,“ segir í yfirlýsingunni.

SÁÁ taldi ekki þörf á verkferlum varðandi áreitni

Þá segist Rótin hafa spurt stjórnendur SÁÁ um verkferla samtakanna varðandi kynferðislega áreitni og ofbeldi árið 2017 en að því hafi verið svarað að þeirra væri ekki þörf.

Jafnframt segir félagið það mikil vonbrigði að embætti landlæknis hafi haft vitneskju um brotið í tvö ár án þess að aðhafast. Stofnendur félagsins hafi áður gert tilraun til að vinna að úrbótum í stefnu og meðferð kvenna innan SÁÁ, en fljótlega hafi það orðið ljóst að lítill áhugi væri á þeirri áfalla- og kynjamiðuðu nálgun sem nauðsynleg sé í meðferðarstarfi.

Segja brot Einars ekki vera óheppilega tilviljun

„Rótin var stofnuð til að vinna þessum málum framgang en SÁÁ hefur tekið illa í hugmyndir félagsins, gert lítið úr þeim og beitt þöggunartilburðum.“

Í yfirlýsingu Rótarinnar segir að lykilorðið í vímuefnameðferð fólks með erfiða áfallasögu sé öryggi en að því miður hafi þetta öryggi ekki verið skapað í meðferðarkerfinu. Breyta þurfi samfélaginu til hins betra og hafna kerfum sem byggist á misnotkun valds líkt og #Me-Too byltingin snýst um.

„Sá hörmulegi atburður að formaður samtaka, sem stjórnvöld hafa gefið vald yfir fólki með vímuefnavanda, er ekki óheppileg tilviljun heldur hlekkur í langri keðju. Þessi keðja rofnar ekki nema farið sé í markvissar aðgerðir til að uppræta ofbeldismenninguna.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert