Youtube tekur þátt í herferð gegn samsæriskenningum Kjartan Kjartansson skrifar 15. október 2020 23:40 Myndbandsveitan Youtube hefur lengi legið undir ámæli fyrir að ýta notendum sínum í átt að sífellt öfgakenndara efni og skoðunum. Google ætlar nú að skera upp herör gegn ákveðnum hættulegum samsæriskenningum á miðlinum. AP/Patrick Semansky
Bannað verður að bendla einstaklinga eða hópa við samsæriskenningar eins og Qanon sem hafa orðið kveikjan að ofbeldisverkum á samfélagsmiðlinum Youtube. Þar með fylgir Google, eigandi Youtube, í fótspor samfélagsmiðlanna Facebook og Twitter í að taka á fjarstæðukenndum og hættulegum samsæriskenningum. Tugir þúsunda myndbanda og hundruð rása sem tengjast Qanon-samsæriskenningunni hafa þegar verið fjarlægð af Youtube á grundvelli núgildandi notendaskilmála, sérstaklega þegar þar koma fram ofbeldishótanir eða afneitun á meiriháttar ofbeldisverkum, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar. „Öll þessi vinna hefur leikið lykilhlutverk í að takmarka dreifingu skaðlegra samsæriskenninga en það er enn meira sem við getum gert til að taka á ákveðnum samsæriskenningum sem eru otaðar til þess að réttlæta ofbeldi í raunheimum, eins og Qanon,“ sagði í bloggfærslu fyrirtækisins í dag. Qanon er fjarstæðukennd samsæriskenning sem gengur út á að Donald Trump Bandaríkjaforseti heyi leynilegt stríð gegn alþjóðlegum hring djöfladýrkandi barnaníðinga sem svo vill til að margir pólitískir andstæðingar forsetans að tilheyri. Trúa fylgismenn kenningarinnar því að Trump sé við það að handtaka fjölda fyrirmenna og stjórnmálamanna. Youtube bannar einnig að svonefndri Pizzagate-samsæriskenningu, sem var forveri Qanon-kenningarinnar, sé beint að fólki eða hópum. Sú kenning varð vopnuðum manni tilefni til að fara inn á veitingastað í Washington-borg í Bandaríkjunum til þess að „rannsaka“ hvort að þar leyndist barnaníðshringur og hleypa af skoti úr hríðskotariffli mánuði eftir forsetakosningarnar árið 2016. Hann var dæmdur í fangelsi árið eftir. Var helsti vettvangurinn fyrir dreifingu kenningarinnar Sophie Bjork-James, mannfræðingur við Vanderbilt-háskóla, sem rannsakar Qanon segir AP-fréttastofunni að Youtube hafi verið hafi verið helsti vettvangurinn þar sem kenningunni var dreift undanfarin þrjú ár. „Án miðilsins væri Q líklega áfram lítt þekkt samsæriskenning. Um árabil gaf Youtube þessum róttæka hópi alþjóðlegan markhóp,“ segir hún. Qanon hefur orðið æ meira áberandi í Bandaríkjunum og í fleiri löndum undanfarin misseri og lýsir nú nokkur hópur frambjóðenda Repúblikanaflokksins í kosningunum í nóvember yfir trúnaði á kenninguna. Ýmsir sérfræðingar spyrja sig því hvort að Google grípi ekki of seint í rassinn með aðgerðir sínar nú. Facebook tilkynnti í síðustu viku að miðillinn ætlaði að banna hópa sem styðja Qanon opinskátt. Síður, hópar og Instragram-reikningar yrðu teknir niður ef þeir deildu Qanon-efni, jafnvel þó ekki væri hvatt beinlínis til ofbeldis. Twitter lét til skarar skríða gegn Qanon í sumar og bannaði þúsundir reikninga sem tengdust Qanon og bönnuðu deilingar á vefslóðum. Þá hætti miðillinn að mæla með Qanon tístum.
Bandaríkin Samfélagsmiðlar Google Facebook Twitter Tengdar fréttir Samsæriskenningar flæða yfir neyðarlínu í gróðureldunum Starfsmenn neyðarlínu í Oregon í Bandaríkjunum hafa ekki undan að svara símtölum frá fólki með samsæriskenningar um að svonefndir andfasistar hafi kveikt gríðarlega gróðurelda sem þar geisa. 11. september 2020 15:55 Ánægður með stuðning hættulegra samsæringa Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti yfir ánægju með hreyfingu sem kallast Qanon, sem byggir á innihaldslausum samsæriskenningum og Alríkislögregla Bandaríkjanna segir að ógn stafi af. 20. ágúst 2020 11:07 Twitter bannar fylgjendur fjarstæðukenndrar samsæriskenningar um Trump Fleiri en sjö þúsund Twitter-reikningum sem tengjast fjarstæðukenndri samsæriskenningu af hægri vængnum um Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur verið eytt. 22. júlí 2020 11:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Berst gegn kvíaeldi á jörð sem hann telur sína Innlent Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Innlent Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Innlent Segja baráttuna bara rétt að hefjast Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Erlent Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Erlent Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Erlent Íbúar sváfu vært meðan á öllu gekk á jarðhæðinni Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Varnarmál efst á baugi nýs formanns Ætla að endurreisa Børsen „sama hvað“ Frumvarp um bann við TikTok samþykkt Heita Úkraínu 61 milljarði dala í stuðning Tugir þúsunda mótmæltu fjölda ferðamanna á Kanaríeyjum Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Sjá meira
Samsæriskenningar flæða yfir neyðarlínu í gróðureldunum Starfsmenn neyðarlínu í Oregon í Bandaríkjunum hafa ekki undan að svara símtölum frá fólki með samsæriskenningar um að svonefndir andfasistar hafi kveikt gríðarlega gróðurelda sem þar geisa. 11. september 2020 15:55
Ánægður með stuðning hættulegra samsæringa Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti yfir ánægju með hreyfingu sem kallast Qanon, sem byggir á innihaldslausum samsæriskenningum og Alríkislögregla Bandaríkjanna segir að ógn stafi af. 20. ágúst 2020 11:07
Twitter bannar fylgjendur fjarstæðukenndrar samsæriskenningar um Trump Fleiri en sjö þúsund Twitter-reikningum sem tengjast fjarstæðukenndri samsæriskenningu af hægri vængnum um Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur verið eytt. 22. júlí 2020 11:59