Grindavík semur við Svía

Amanda Okodugha hefur samið við Grindavík.
Amanda Okodugha hefur samið við Grindavík. Ljósmynd/Grindavík

Grindavík hefur samið við sænskan miðherja að nafni Amanda Okodugha fyrir komandi tímabil í úrvalsdeild kvenna í körfubolta. 

Amanda, sem er 27 ára gömul, kemur til Grindavíkur frá Visby í sænsku úrvalsdeildinni. Amanda lék einnig með Lincoln University í háskólakörfuboltanum. 

Þorleifur Ólafsson er hæstánægður með að fá Okodugha. 

Ég er mjög ánægður með að fá Amöndu Okodougha til liðs við okkur. Hún er hávaxin og mun koma til með að styrkja okkar lið undir körfunni. Ég hreifst af þeirri baráttu sem hún sýnir í leikjum og hlakka til að fá hana til liðs við okkur í Grindavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert