Kleini sneri aftur á samfélagsmiðla: „Ertu að gefa mér Porsche?“

Kristján Einar Sigurbjörnsson kom unnustu sinni verulega á óvart.
Kristján Einar Sigurbjörnsson kom unnustu sinni verulega á óvart. Samsett mynd

Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son, bet­ur þekkt­ur sem Kleini, sneri aft­ur á sam­fé­lags­miðla með stæl í dag eft­ir að hafa tekið sér tæp­lega fimm mánaða pásu frá öll­um miðlum. Kleini tjaldaði öllu til og birti mynd­band af snemm­bú­inni jóla­gjöf af dýr­ari gerðinni til unn­ustu sinn­ar Haf­dís­ar Bjarg­ar Kristjáns­dótt­ur.

Haf­dís og Kleini hafa verið áber­andi í fjöl­miðlum frá því neisti kviknaði á milli þeirra fyrr á ár­inu, en í dag eru þau trú­lofuð. Í júlí síðastliðnum greindi Kleini frá því að hann hygðist taka sér sam­fé­lags­miðlapásu næstu sex til tólf mánuðina til þess að ein­beita sér að mark­miðum sín­um og fjöl­skyldu, en nokkr­um mánuðum síðar ákvað Haf­dís að gera slíkt hið sama og því hef­ur lítið sést til þeirra að und­an­förnu. 

„Ég er að gefa þér fokk­ing Porsche“

Nú virðist Kleini vera snú­inn aft­ur á sam­fé­lags­miðla, en hann birti í dag fyrstu færsl­una frá því í júlí. Í mynd­band­inu sem hann birti á TikT­ok deildi hann augna­blik­inu þegar Haf­dís fékk snemm­búna jóla­gjöf frá hon­um. Kleini rétti henni lykla af glæsikerru frá Porsche, sem virðist vera af gerðinni Porsche Cayenne, sem var skreytt með slauf­um og blöðrum. 

„Ertu að gefa mér Porsche?“ spyr Haf­dís hissa þegar hún sér bíl­inn og Kleini svar­ar: „Ég er að gefa þér fokk­ing Porsche.“ Hún virt­ist yfir sig ánægð með gjöf­ina og þakkaði Kleina fyr­ir áður en hún sett­ist upp í Porscheinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Ef þú ert að huga að fasteignakaupum ættirðu að drífa í því á næstu sex mánuðum. Sýndu fyrirhyggju í fjármálum sem og öðrum málum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
4
Arn­ald­ur Indriðason
5
Col­leen Hoo­ver
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Ef þú ert að huga að fasteignakaupum ættirðu að drífa í því á næstu sex mánuðum. Sýndu fyrirhyggju í fjármálum sem og öðrum málum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
4
Arn­ald­ur Indriðason
5
Col­leen Hoo­ver