Réttarkerfið þurfi að þróast í takt við þá samfélagslegu umbreytingu sem nú eigi sér stað Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 11. janúar 2022 19:00 Katrín Jakobsdóttir. vísir/vilhelm Forsætisráðherra segir að réttarkerfið þurfi að þróast í takt við þá miklu samfélagslegu umbreytingu sem nú eigi sér stað í málefnum um kynferðisofbeldi.
Forsætisráðherra segir að marktækar breytingar eigi sér nú stað í samfélaginu þegar kemur að umræðu um kynferðisofbeldi. „Við erum auðvitað stödd í gríðarlegri samfélagslegri umbreytingu sem að einhverju leyti hófst með fyrstu metoo bylgjunni fyrir fjórum árum sem hefur skilað sér í ákveðnum breytingum og það má segja að þetta nýjasta mál marki síðan ákveðin tímamót í þessum málum öllum,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Vísar hún þar í atburðarás sem fór hratt af stað þegar fimm þjóðþekktir karlmenn ýmist létu af störfum eða fóru í leyfi í tengslum við ásakanir ungar konu um að fjórir þeirra hefðu brotið á henni á meðan hún átti í ástarsambndi við vin þeirra. Mennirnir hafa allir verið þöglir sem gröfin eftir að málið rataði í fjölmiðla, þrátt fyrir tilraunir fréttastofu til þess að ná í þá í dag og síðustu daga. Þá hefur Elín Margrét Stefánsdóttir, stjórnarformaður Íseyjar útflutnings ekki heldur svarað símtölum fréttastofu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir en stjórnin sagði framkvæmdastjóranum, Ara Edwald upp störfum vegna ásakana um kynferðisofbeldi. Katrín segir að okkur miði fram á við í málaflokknum. „Það er að aukast mjög skilningur í samfélaginu á kynbundnu og kynferðislegu áreitni og ofbeldi, afleiðingum þess og hvað þarf að breytast til þess að við getum tryggt það að þetta samfélag sé í raun öruggt fyrir okkur öll.“ Þá sé mikilvægt að bæta réttarstöðu þolenda líkt og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. „Það skiptir einmitt máli að bæði réttarkerfið og öll okkar kerfi taki breytingum í takt við þessa samfélagslegu þróun.“
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur MeToo Tengdar fréttir Segir ungar konur hvatningu og greinir frá kynferðisofbeldi eftir 42 ára þögn Kona á sextugsaldri sem greindi frá kynferðisofbeldi eftir 42 ára þögn óttast að konur á hennar aldri veigri sér við því að stíga fram og skila skömminni. Hún dáist að ungum konum sem séu smátt og smátt að breyta samfélaginu. 10. janúar 2022 19:30 „Sorglegt? Nei, fyrst og fremst viðbjóðslegt og ömurlegt“ „Ég hef tekið eftir því að sumir afgreiða fréttir síðustu daga með því að segja að þetta sé „fyrst og fremst sorglegt“. Eins og það sé niðurstaðan. Nei, þetta er fyrst og fremst viðbjóðslegt og ömurlegt og það þarf að ræða þetta – meira og lengur. Fletta lögunum af, einu af öðru – því þetta er í mörgum, hárfínum lögum og þetta snýst ekki bara um fimm spillta og dómgreindarlausa karla úti í bæ.“ 11. janúar 2022 14:16 Atburðir gærdagsins marki tímamót í baráttu gegn kynferðisofbeldi Prófessor í heimspeki segir gærdaginn, þegar fimm þjóðþekktir karlmenn ýmist létu af störfum eða fóru í leyfi í tengslum við ásakanir ungrar konu um að fjórir þeirra hafi brotið á henni á meðan hún átti í ástarsambandi við vin þeirra, vera sögulegan. 7. janúar 2022 21:50 Merkir viðhorfsbreytingu í samfélaginu eftir atburði gærdagsins Aðjúnkt við Háskóla Íslands merkir viðhorfsbreytingu í samfélaginu þegar kemur að umræðu um kynferðisofbeldi eftir atburði gærdagsins. 7. janúar 2022 12:32 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Mikið vesen á veitingastöðum borgarinnar Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Erlent „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Innlent Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Erlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent Fleiri fréttir Vaknaði og barnið var horfið Mikið vesen á veitingastöðum borgarinnar Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Sjá meira
Segir ungar konur hvatningu og greinir frá kynferðisofbeldi eftir 42 ára þögn Kona á sextugsaldri sem greindi frá kynferðisofbeldi eftir 42 ára þögn óttast að konur á hennar aldri veigri sér við því að stíga fram og skila skömminni. Hún dáist að ungum konum sem séu smátt og smátt að breyta samfélaginu. 10. janúar 2022 19:30
„Sorglegt? Nei, fyrst og fremst viðbjóðslegt og ömurlegt“ „Ég hef tekið eftir því að sumir afgreiða fréttir síðustu daga með því að segja að þetta sé „fyrst og fremst sorglegt“. Eins og það sé niðurstaðan. Nei, þetta er fyrst og fremst viðbjóðslegt og ömurlegt og það þarf að ræða þetta – meira og lengur. Fletta lögunum af, einu af öðru – því þetta er í mörgum, hárfínum lögum og þetta snýst ekki bara um fimm spillta og dómgreindarlausa karla úti í bæ.“ 11. janúar 2022 14:16
Atburðir gærdagsins marki tímamót í baráttu gegn kynferðisofbeldi Prófessor í heimspeki segir gærdaginn, þegar fimm þjóðþekktir karlmenn ýmist létu af störfum eða fóru í leyfi í tengslum við ásakanir ungrar konu um að fjórir þeirra hafi brotið á henni á meðan hún átti í ástarsambandi við vin þeirra, vera sögulegan. 7. janúar 2022 21:50
Merkir viðhorfsbreytingu í samfélaginu eftir atburði gærdagsins Aðjúnkt við Háskóla Íslands merkir viðhorfsbreytingu í samfélaginu þegar kemur að umræðu um kynferðisofbeldi eftir atburði gærdagsins. 7. janúar 2022 12:32