Fótbolti

„Sokknum verður ekki skilað“

Atli Arason skrifar
Gunnar Magnús Jónsson með sokkinn umtalaða.
Gunnar Magnús Jónsson með sokkinn umtalaða. Vísir/Atli Arason

Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, sagði að liðið sitt hefði ekki mætt klárt til leiks gegn Aftureldingu í 1-2 tapi liðsins í fjórðu umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta.

„Mér fannst við ekki mæta tilbúnar. Við vorum búnar að ræða það fyrir leik að þetta yrði gríðarlega mikill baráttu leikur en við vorum ekki tilbúnar í baráttuna og fengum á okkur ódýr mörk. Svo voru þær mikið til baka í síðari hálfleik og við náðum ekki að skapa okkur neitt svakalegt en svona getur fótboltinn verið,“ sagði Gunnar í viðtali við Vísi eftir leikinn.

Lið Keflavíkur kom öllum að óvörum með því að vinna fyrstu tvo leiki sína í deildinni og þar á meðal stórlið Breiðabliks. Eftir þann leik vildi Gunnar koma sokk til skila til Helenu Ólafs og fleiri sem höfðu spáð Keflavíkingum hrakfalls gengi á tímabilinu og vakti það mikla athygli. Eftir tvo tapleiki í röð var Gunnar eðlilega spurður að því hvort það væri þá tímabært að skila sokknum til baka.

„Ég veit það nú ekki. Þetta er þannig í fótboltanum að maður þarf að gleðjast þegar það gengur vel og það er bara eðlilegt. Ég ætla að vona það hlakki ekki í skólasystur minni henni Helenu þegar það gengur illa hjá okkur, en nei nei, sokknum verður ekki skilað,“ svaraði Gunnar og gat leyft sér að horfa á kímnislega hlið þessa umtalaða atviks.

Keflvíkingar styrktu hóp sinn fyrir gluggalok með því að fá til liðs við sig spænskan miðjumann að nafni Maria Corral Pinon. Maria spilaði með Ana Paula Santos, leikmanni Keflavíkur, í William Carey háskólanum í Mississippi í Bandaríkjunum.

„Hún kemur til landsins seinni hlutann í maí. Það vill svo til að þetta er vinkona hennar Önnu Pálu og hún er bara að koma í heimsókn og ætlar að fá að æfa með okkur og við létum hana bara fá félagaskipti. Síðan kemur í ljós hvort hún muni spila með okkur eða ekki,“ sagði Gunnar að lokum, aðspurður út í nýjasta liðsstyrk Keflavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×